Frétt

·

Nýtt og betra ON app komið í loftið

Nýtt og endurbætt ON app er nú komið í loftið. Með nýja appinu stígum við næsta skref í því að þróa hleðsluþjónustu ON og gera hleðsluupplifun viðskiptavina enn betri.

Nú þurfa allir hleðsluviðskiptavinir ON að:

·       skrá sig inn í ON appið með rafrænum skilríkjum

·       setja inn greiðslukortaupplýsingar

Þetta á einnig við þau sem nota ON lykilinn. Til að halda áfram að nota ON lykilinn þarf að vera með greiðslukort skráð í ON appinu. Þau sem eru ekki með appið byrja á að sækja það í App Store eða Google Play.

„Með nýja appinu erum við að leggja grunn að enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Við hlökkum til að kynna aukna möguleika appsins í nýju viðmóti. Þar sem um stóra uppfærslu er að ræða færast greiðslukortaupplýsingar ekki á milli, öryggisins vegna. Því hvetjum við öll til að sækja eða uppfæra appið og setja inn greiðslukortaupplýsingar. Sem dæmi um nýja virkni í appinu er nú hægt að nota bæði Apple Pay og Google Pay til að greiða fyrir hleðslu,“ segir Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá ON.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar hér.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!