Frétt

·

Nemendur Landbúnaðarháskólans í heimsókn á Hellisheiði

Í síðustu viku komu nemendur í meistaranámi í endurheimt vistkerfa við Landbúnaðarháskóla Íslands í heimsókn á Hellisheiði til að kynna sér fjölbreytt verkefni ON á sviði umhverfismála.

Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri ON, tók á móti hópnum og kynnti þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í á svæðinu til að endurheimta vistkerfi og draga úr áhrifum framkvæmda á náttúruna. Að kynningu lokinni var farið í vettvangsferð þar sem nemendur fengu tækifæri til að skoða verkefnin.

Meðal þess sem var skoðað voru svæði þar sem fræslægju hefur verið dreift með góðum árangri til að stuðla að uppgræðslu og auknum líffræðilegum fjölbreytileika. Einnig voru heimsótt svæði þar sem gróðurtorfur, sem haldið hafði verið til haga við framkvæmdir, hafa verið lagðar yfir röskuð svæði til að flýta fyrir endurheimt gróðurs og vistkerfa.

Jafnframt var skoðaður endurheimtur lækur á svæðinu þar sem beitt hefur verið náttúrumiðuðum lausnum til að stýra yfirborðsvatni. Verkefnið er gott dæmi um hvernig nýta má náttúrulega ferla til að takast á við umhverfisáskoranir á sjálfbæran hátt.

„Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að deila þeirri reynslu sem hefur byggst upp hjá okkur hjá ON. Svona vettvangsheimsókn gefur nemendum tækifæri til að sjá hvernig ólíkar aðferðir eru nýttar í framkvæmd og hvernig hægt er að samþætta orkuvinnslu, náttúruvernd og vistheimt á sama svæði,“ segir Magnea.

ON leggur áherslu á að miðla þekkingu og reynslu til nemenda, fræðasamfélagsins og annarra. Með því að taka á móti hópum sem þessum skapast mikilvægt tækifæri til samtals, lærdóms og samstarfs sem getur stutt við áframhaldandi þróun og framfarir.


Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!