Ráðgjöf
Metum þörfina og leggjum til lausn sem hentar
Þjónusta
Sjáum um viðhald og þjónustu allan sólarhringinn
Áhyggjulaus rekstur
Sníðum þjónustuna að þínum þörfum og við erum á vaktinni allan sólarhringinn
Gagnsæi í rekstri
Hleðsluáskrift
AC 22 kW hleðslustöð
4.400 kr
(með vsk) á mánuði
1.190 kr
(með vsk) - Fyrir eigin hleðslustöð
Þjónustuver allan sólarhringinn
Yfirsýn yfir rafmagnsálag
Við ábyrgjumst búnaðinn
Hleðsluáskrift +
AC 22 kW hleðslustöð
5.500 kr
(með vsk) á mánuði
2.290 kr
(með vsk) - Fyrir eigin hleðslustöð
Hraðhleðsla í áskrift
Hraðhleðsla DC 50 til 400 kW hleðslustöð
Áskrift að hraðhleðslustöð (DC) til að hlaða eigin bíla í rekstri.
Hraðhleðsla hjá fyrirtækjum hentar vel stærri bifreiðum og þar sem mikil notkun er yfir daginn. Við veitum ráðgjöf til að mæta ólíkum þörfum.
Ertu með eigin hleðslustöð?
Tryggðu þér áhyggjulausan rekstur á hleðslustöðvum í þínu fyrirtæki, ef þú ert með eigin hleðslustöðvar þá getum við tekið þær flestar yfir og tryggt yfirsýn, gjaldtöku og þjónustu fyrir notendur. Kynntu þér málið og pantaðu ráðgjöf hjá viðskiptastjórum ON.
Er þitt fyrirtæki á kortinu?
Með því að vera í Hleðsluáskrift + hefur þú valkost á að gera fyrirtækið þitt sýnilegra í ON-appinu. Kjörið fyrir verslanir og veitingahús sem vilja auka þjónustuna við núverandi viðskiptavini, laða að nýja viðskiptavini og um leið leggja sitt af mörkum fyrir umhverfið.
Heimahleðsla fyrir starfsfólk
Vinnuveitendur geta boðið starfsfólki sínu að greiða af hleðslustöð á heimilum þeirra ásamt notkun ef hún tilheyrir fyrirtækinu. Þetta hentar t.d. starfsfólki sem er á fyrirtækjabíl og getur þá hlaðið hann heima á kostnað vinnuveitanda til hagræðingar og án tafa á vinnudegi.
Þjónustan er í boði fyrir bæði sérbýli og fjölbýli þar sem ON kerfi er uppsett. Skilyrt er að ON sé raforkusali sérbýlis þar sem endurgreiðsla er dregin frá rafmagnsreikningi.
AC 22 kW hleðslustöð
4.400 kr (með vsk) á mánuði
Hýstu hraðhleðslustöð
ON hefur verið leiðandi í orkuskiptum frá árinu 2014 og viljum við gjarnan fá þig í lið með okkur. Við erum alltaf með augun opin til að styrkja almennings hleðslunet okkar og erum til í að fá góðar ábendingar um samstarf og staðsetningar sem gætu hentað.
01
Þú sendir inn ábendingu
02
ON hefur samband, skoðum aðstæður, metum innviði, umferð og aðgengi á staðnum.
03
Við leggjum fram tillögu að lausn
Ef staðsetning passar inn í hleðslunet ON þá fjármögnun við að hluta eða alla fjárfestingu og semjum um greiðslu fyrir afnot af stæðum.
Teymið okkar
ON hefur mælst hæst í Íslensku ánægjuvoginni undanfarin sex ár. Það er alls ekki sjálfgefið og því er mikið virði í að vera með öflugt teymi til að þjónusta okkar viðskiptavini. Teymi sem hefur það markmið að veita framúrskarandi þjónustu með fjölbreyttum hleðslulausnum svo allir geti hlaðið á auðveldan hátt.