Breytingar á verðskrá


Breyting á verðskrá þann 15. september 2026

Breyting á verðskrá þann 15. september 2026

Frá og með 15.september taka gildi breytingar á verðskrá rafmagns fyrir Heimahleðslu í fjölbýli og Hleðsluáskrift fyrirtækja.

Markmið breytingarinnar er að einfalda verðlagningu þjónustunnar og gera hana skýrari fyrir viðskiptavini. Í stað þess að verðskrá taki mið af fleiri dreifisvæðum verður Hleðsluáskrift framvegis með tvær verðskrár, annars vegar fyrir þéttbýli og hins vegar fyrir dreifbýli. Breytingin er liður í að auka einfaldleika og gagnsæi í þjónustunni.

Ný verðskrá er aðgengileg á on.is/verdskrar.

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst á on@on.is, spjalla við okkur á netspjallinu eða heyra í okkur í síma 591-2700.