Hleðsluáskrift ON - almennir viðskiptaskilmálar

  1. Almennt

Skilmálar þessir gilda um notkun á Hleðsluáskrift Orku náttúrunnar fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Hleðsluáskrift ON er þjónusta sem veitir aðgang að hleðslustöð fyrir raftengjanlegar bifreiðar, ásamt annarri þjónustu sem Hleðsluáskrift ON felur í sér. Innifalið í áskriftargjaldi er almenn þjónusta, rekstur og viðhald hleðslustöðvar vegna eðlilegrar notkunar.

ON veitir viðskiptavini aðgang að hleðslubúnaði svo hann geti nýtt hann til hleðslu bifreiðar. Um kaup á rafmagni fer samkvæmt samningi viðskiptavinar við þann raforkusala sem hann á í samningssambandi við og viðskiptaskilmálum dreifiveitu á viðkomandi svæði.

ON áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar eru kynntar á vefsíðu ON.

  1. Uppsetning og notkun

Hleðslustöð er í eigu ON, nema annað sé sérstaklega tekið fram. ON leggur til og setur upp stöð sem er tilbúin til notkunar.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tryggja að grunnur fyrir hleðslustöð uppfylli lögbundnar kröfur, þar á meðal raflagnir og tengingar að hleðslustöð auk þess að varbúnaði er komið fyrir samkvæmt viðeigandi stöðlum og leiðbeiningum ON og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, www.hms.is. Allt viðhald á slíkum grunni er á ábyrgð viðskiptavinar og í hans eigu.

ON er heimilt að taka myndir af frágangi og uppsetningu að framkvæmd lokinni.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á allri notkun Hleðsluáskriftar ON og öðrum endabúnaði sem lagður er til, þar með talið notkun á búnaði sem tengist þjónustunni. Misnotkun eða notkun sem brýtur í bága við lög eða skilmála getur leitt til lokunar þjónustu, tímabundið eða varanlega.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á búnaði sem ON veitir honum afnot af og skal hann fara vel með hann. Ef búnaður skemmist, glatast eða verður fyrir tjóni er ON heimilt að innheimta kostnað vegna viðgerða eða endurnýjunar.

Ef búnaður bilar eða glatast skal tilkynna það til ON án tafar. ON sinnir viðgerðum og viðhaldi á hleðslustöðvum og búnaði sem veitt eru afnot af. Einungis aðilum á vegum ON er heimilt að sinna viðgerð eða viðhaldi á hleðslustöðvum eða búnaði frá ON. Viðskiptavinur skal veita aðgang að búnaði eftir því sem nauðsynlegt er til að framkvæma slíkt viðhald. ON skuldbindur sig til að sinna viðgerðum eins fljótt og auðið er og bjóða uppá neyðarþjónustu vegna hleðslukerfa ON ef þörf krefur.

ON áskilur sér rétt til að tengjast hleðslustöð viðskiptavinar kerfislega í þeim tilgangi að endurræsa, bilanagreina eða veita hverskonar aðstoð varðandi hana, án sérstaks samráðs við viðskiptavin.

ON ber ekki ábyrgð á útlitslegu yfirborðsskemmdum á fasteign eða öðrum eignum sem kunna að verða við uppsetningu, tilfærslu, útskipti eða niðurtöku hleðslubúnaðar, þar með talið en ekki takmarkað við holur, rispur eða aðrar yfirborðsskemmdir. nema slíkt megi rekja til mistaka eða vanrækslu starfsfólks ON eða aðila á vegum ON.

ON ber ekki ábyrgð á þjónusturofi, en leitast við að koma þjónustu á að nýju í samræmi við markmið sín um þjónustustig og úrlausnartíma. Sé viðskiptavinur án þjónustu vegna bilunar í lengri tíma en þrjá daga, og ástæðu þjónusturofs verður ekki rakið til athafna af hans hálfu, getur viðskiptavinur krafist niðurfellingar áskriftargjalds í réttu hlutfalli við þann tíma sem þjónusturofið varir.

ON sér um að reka fjarskiptabúnað sem tengist hleðslustöð og búnaði sem afnot eru veitt af skal vera í rekstri ON, þar sem eftirlit með sambandi við hleðslukerfið og rekstur þjónustunnar liggur hjá ON. Þetta fyrirkomulag gerir ON kleift að fylgjast með virkni, sinna bilanagreiningu, viðhaldi og tryggja sem bestan uppitíma þjónustunnar.

  1. Greiðslur

Um verð fyrir Hleðsluáskrift ON fer samkvæmt verðskrá ON hverju sinni. Verðskráin er birt á vef ON. Viðskiptavinur greiðir mánaðarlegt áskriftargjald fyrir notkun á Hleðsluáskrift ON. Gjaldið miðast við fyrsta dag næsta mánaðar sem þjónustan virkjast í kerfum ON og er greitt fyrir fram. Breytingar á verðskrá eru kynntar viðskiptavinum á vef ON.

Viðskiptavinur greiðir fastagjald vegna raforkumælis fyrir hleðslukerfið. Ef raforkumælir er skráður á ON rukkar ON viðskiptavin mánaðarlega fastagjald eftir á samkvæmt verðskrá viðkomandi dreifiveitu.

Húsfélag skuldbindir sig til að tryggja að ekkert óviðkomandi sé tengt inn á raforkumæli fyrir hleðslukerfi.

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að greiða fyrir notkun í samræmi við gildandi verðskrá ON fyrir rafhleðslur.

Viðskiptavinur greiðir tilkynningar- og greiðslukostnað fyrir rafrænar tilkynningar, skuldfærslur á greiðslukort eða beingreiðslur samkvæmt verðskrá ON.

Gjalddagi og eindagi áskriftargjalds vegna yfirstandandi mánaðar er að jafnaði fimmti dagur þess mánaðar. Sé reikningur greiddur eftir gjalddaga greiðir viðskiptavinur dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, auk innheimtukostnaðar samkvæmt verðskrá.

ON er heimilt að loka fyrir Hleðsluáskrift ON hafi skuld ekki verið greidd innan 30 daga frá gjalddaga og fjarlægja hleðslubúnað í eigu ON. Ef lokað er vegna vanskila ber ON ekki ábyrgð á þeirri röskun, óþægindum eða tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir af þeim sökum.

Athugasemdir við reikninga skulu berast eins fljótt og auðið er og eigi síðar en á gjalddaga. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.

  1. Uppsögn

Báðum aðilum er heimilt að segja upp Hleðsluáskrift ON.

Uppsögn þarf að berast ON skriflega, til dæmis með tölvupósti á on@on.is. Uppsagnarfrestur er 30 dagar og hefst 1. dag næsta mánaðar eftir að skrifleg tilkynning berst. Sömu forsendur eiga við ef uppsögn af hálfu ON á sér stað.

Hleðslustöð er fjarlægð að uppsagnarfresti loknum af hálfu starfsfólks ON. Lagnir að hleðslustöð og aðrir innviðir eru ekki fjarlægðar, þær eru í eigu viðskiptavinar.

  1. Önnur ákvæði

Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarskilmálum ON sem birtir eru á vef ON.

Komi upp ágreiningur vegna skilmála þessara skulu aðilar leitast við að leysa málið í sátt. Takist það ekki skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

ON leggur áherslu á að halda viðskiptavinum upplýstum um atriði sem geta haft áhrif á þjónustu og upplifun viðskiptavina á henni. Því kann ON að senda tilkynningar eða hafa samband vegna bilana, viðhalds, uppfærslna, öryggismála, reikninga eða annarra þjónustutengdra mála. Þessi samskipti eru hluti af þjónustunni og eru ekki markaðssamskipti.