Útivistarstígar á Hengilssvæðinu.
Öll velkomin!
Hengilssvæðið er háhitasvæði um 20 kílómetra suðaustur af Reykjavík og kjörið til fjölbreyttrar útivistar allan ársins hring. Tugþúsundir Íslendinga og erlendir ferðamenn stunda útivist á svæðinu en þar eru um 130 km net af merktum stígum, upplýsingaskilti, gönguskálinn Múlasel og kort sem sýnir gönguleiðir og varðaðar leiðir. Orka náttúrunnar og Orkuveitan hafa haft veg og vanda af þessu starfi frá árinu 1991, í samráði við sveitastjórnir á svæðinu. Utan athafnasvæða jarðhitavirkjana Orku náttúrunnar er svæðið opið almenningi en gæta skal sérstakrar varúðar við hveri og heita læki en einnig við borholur vegna heitrar gufu og hættu á gasmengun.
Um leið og fólki er velkomið að njóta stórbrotinnar náttúru og útivistarsvæðis Hengilsins biðjum við útivistarfólk um að ganga af virðingu um svæðið og lágmarka rask. Hengilssvæðið er á virku gosbelti og er einstakt jarðhitasvæði með óvenju mikið vatn á yfirborðinu. Þar er að finna heita hveri, hraungíga, gróðursæla bletti, ár og vötn. Þar eru líka heitir lækir með sérstæðu vatnalífi og lífríki sem því tengist og votlendi með sérstæðan votlendisgróður með hátt verndargildi. Undirlagið er margbreytilegt og þolir sjaldan mikinn ágang en með því að fylgja stígum má fyrirbyggja landeyðingu og rof og tryggja þannig að hægt verði að njóta svæðisins áfram.
Orkuveitan heldur úti viðhaldsteymi útivistarstíga á Hengilssvæðinu sem sér um að lagfæra og leggja nýja stíga á sumrin. Ábendingar um ástand stíga má senda á netfangið hengill@orkuveitan.is.
Hengladalir eru einstakir vegna samspils jarðhita, landslags og vistgerða með mjög hátt og hátt verndargildi. Ljóð Hólmfríðar Sigurðardóttur, umhverfisgyðju Orkuveitunnar til margra ára, lýsir vel þeim hughrifum sem svæðið hefur kallað fram hjá henni því „þar titrar lífið, fágætt og dýrmætt“ eins og hún kemst að orði.