Frétt
·
ON á Uppsprettu Suðurlands

Valgerður B Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla hjá Orku náttúrunnar, flutti erindið „Tendrum Glóð á heiðinni – nýsköpun hjá Orku náttúrunnar“ á Uppsprettu Suðurlands, hátíð vaxtar og verðmætasköpunar, sem fór fram á Selfossi síðastliðinn föstudag.
ON var einn af bakhjörlum Uppsprettu Suðurlands sem var fyrsti heildstæði viðburður og hátíð atvinnulífs, nýsköpunar og frumkvöðla á Suðurlandi. Um 120 gestir komu saman til að kynnast hugmyndum og verkefnum, deila reynslu og mynda tengsl.
Erindi Valgerðar beindi sjónum að nýsköpun hjá ON en ný nýsköpunarstefna fyrirtækisins var kynnt í vor. Henni er ætlað að efla nýsköpun og rannsóknir innan fyrirtækisins og styðja við sjálfbæran rekstur og tæknilega forystu. Með aukinni áherslu á nýsköpun vill ON jafnframt styrkja hæfni sína til að takast á við breytingar og áskoranir til lengri tíma.
Þessar áherslur féllu vel að viðfangsefnum Uppsprettu Suðurlands, þar sem rætt var hvernig skapa megi hugmyndum farveg og efla nýsköpun bæði hjá frumkvöðlum og innan starfandi fyrirtækja.
Sameiginleg stefna um nýsköpun á Suðurlandi
Einn af hápunktum hátíðarinnar var kynning á fyrstu sameiginlegu nýsköpunarstefnu Suðurlands. Háskólafélag Suðurlands vann stefnuna fyrir Samtök sunnlenskra sveitarfélaga í samráði við atvinnulíf, sveitarfélög, þekkingarsamfélag og stuðningskerfi nýsköpunar.
Markmiðið er að skapa öflugt og samkeppnishæft nýsköpunarumhverfi þar sem fleiri hugmyndir geta þróast í verkefni, fyrirtæki og ný verðmæti.
Hér má lesa nánar um nýsköpunarstefnu Suðurlands.
Frá hugmynd að fyrirtæki
Á dagskrá Uppsprettu voru einnig fjölbreyttar frásagnir af nýsköpun í framkvæmd. Sesselja frá Drift kynnti Kveikjuna, verkefni sem miðar að því að efla nýsköpun innan starfandi fyrirtækja og Marta Rut Ólafsdóttir, meðstofnandi HorseDay, sagði frá því hvernig fyrirtækið varð að veruleika með styrk úr Uppbyggingarsjóði árið 2020.
Dagskráin hófst á lokaviðburði Startup Landsins, viðskiptahraðals landshlutasamtakanna. Þar kynntu frumkvöðlar víðs vegar að af landinu verkefni sem þau höfðu þróað í hraðlinum, skerpt á viðskiptahugmyndum sínum og byggt upp tengslanet.
Hátíðin sýndi þann kraft sem býr í sunnlensku atvinnulífi og mikilvægi þess að tengja saman fólk, þekkingu og stuðning svo hugmyndir geti orðið að veruleika.















