Frétt

·

Nýsköpun í orku náttúrunnar vakti áhuga fjölda gesta

Fjöldi gesta sótti morgunfund Orku náttúrunnar um nýsköpun sem haldinn var í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Bæjarhálsi í gær. Fundurinn gekk afar vel og voru gestir ánægðir með viðburðinn, þar sem fjölbreytt verkefni og nýjar leiðir í orkunýtingu voru í sviðsljósinu.

Hvernig verður hugmynd í orkugeiranum að lausn? Þessi spurning var leiðarstef fundarins, þar sem fulltrúar ON, Orkuveitunnar, Hugverkastofu og Háskóla Íslands fjölluðu um rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun út frá ólíkum sjónarhornum.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar ávarpaði gesti í myndbandi þar sem hann ræddi um mikilvægi nýsköpunar og 100 ára frumkvöðulinn Orkuveituna. Þá tók Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, við og bauð gesti velkomna auk þess að fjalla um nýsköpun hjá Orku náttúrunnar.

Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON, fór yfir nýlega nýsköpunarstefnu fyrirtækisins og hvernig hún verður framkvæmd og Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofu, fjallaði um einkaleyfi og hver staða íslenskra jarðvarmafyrirtækja væri hvað það varðar.

Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON, flutti erindið „Birta á Bæjarhálsi eftir skýjað sumar“ og dr. Sigrún Nanna Karlsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, fjallaði um efnisrannsóknir og nýsköpun í jarðhitanýtingu. Þá veitti Sigurður Hafsteinn Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, innsýn í möguleika orkuvinnslu með ofurheitum jarðhita.

Nýjar lausnir og umhverfisaðgerðir

Gestir kynntust einnig hvernig nýsköpun er í framkvæmd hjá ON og var meðal annars sagt frá grjótpylsum og mosagraut sem hafa verið notuð í landgræðsluverkefnum, Ultrasonic-hreinsunarverkefninu þar sem hátíðni er notuð gegn útfellingum í varmaskiptum og lofthreinsistöðinni Steingerði við Hellisheiðarvirkjun. Verkefnin sýna hvernig rannsóknir og tækniþróun geta skilað áþreifanlegum árangri í rekstri og stutt við ábyrgari nýtingu auðlinda.

Góð aðsókn og ánægja gesta endurspegluðu áhuga á nýsköpun í íslenskum orkugeira. ON þakkar gestum og fyrirlesurum kærlega fyrir þátttökuna og ánægjulega morgunstund.

 





Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!