Frétt

·

Hvernig verður hugmynd í orkugeiranum að lausn?

Orka náttúrunnar býður til morgunfundar um nýsköpun miðvikudaginn 4. nóvember kl. 09:00–11:00 í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1. Á fundinum verður sjónum beint að nýsköpun í framkvæmd og því hvernig hugmyndir, rannsóknir og tækniþróun verða að lausnum sem nýtast í orkuvinnslu.

Nýsköpun er hluti af daglegu starfi ON. Hún snýst meðal annars um að nýta auðlindir betur, draga úr umhverfisáhrifum og finna nýjar leiðir til að tryggja samfélaginu orku til framtíðar. Á fundinum fá gestir innsýn í verkefni sem unnið er að hjá ON og heyra ólík sjónarhorn á rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun í íslenskum orkugeira.

Meðal umfjöllunarefna verða tengsl íslenskrar orku og einkaleyfa, efnisrannsóknir í jarðhitanýtingu og möguleikar á orkuvinnslu með ofurheitum jarðhita. Einnig verða kynntar umhverfisaðgerðir ON, Ultrasonic hreinsunarverkefnið og lofthreinsistöðin Steingerður, sem gegnir lykilhlutverki í að draga úr losun Hellisheiðarvirkjunar.

Dagskrá fundarins

  • Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.

  • Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

  • Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON: Frá stefnu í framkvæmd: Nýsköpun hjá ON.

  • Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofu: Íslensk orka og einkaleyfi.

  • Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON: Birta Bæjarháls eftir skýjað sumar.

  • Dr. Sigrún Nanna Karlsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Efnisrannsóknir og nýsköpun í jarðhitanýtingu.

  • Sigurður Hafsteinn Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni: Orkuvinnsla með ofurheitum jarðhita.

Fundurinn fer fram miðvikudaginn 4. nóvember kl. 09:00–11:00 að Bæjarhálsi 1. Léttar veitingar verða í boði.

Skráning á fundinn hér!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!