Frétt
·
Nemendur Garðyrkjuskólans kynntu sér vistheimt á Hellisheiði

Um 60 nemendur úr Garðyrkjuskólanum heimsóttu Hellisheiðarvirkjun í vikunni þar sem þeir kynntu sér landgræðslu og vistheimt á virkjanasvæðum Orku náttúrunnar. Í heimsókninni fengu nemendurnir innsýn í þær aðferðir sem ON nýtir til að endurheimta staðargróður, vernda líffræðilega fjölbreytni og draga úr áhrifum framkvæmda á náttúruna.
Nemendurnir eru í áfanganum Vistfræði og var heimsóknin liður í því að kynna fyrir þeim hvernig hægt er að nýta náttúrumiðaðar lausnir til að endurheimta vistkerfi á svæðum þar sem framkvæmdir hafa raskað gróðri og jarðvegi.
Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri ON, tók á móti hópnum og kynnti þær fjölbreyttu aðferðir sem fyrirtækið hefur nýtt við landgræðslu og vistheimt á framkvæmdasvæðum sínum.
Mikilvægt að miðla þekkingu og reynslu
ON hefur um árabil lagt áherslu á að nýta staðargróður við frágang og uppgræðslu á framkvæmdasvæðum. Meðal þeirra aðferða sem fyrirtækið hefur verið leiðandi í að nýta er flutningur gróðurtorfa, þar sem gróðurþekja er varðveitt og nýtt til að endurheimta vistkerfi samhliða framkvæmdum. Einnig eru notaðar aðferðir á borð við fræslægju og gróðursetningu víðigræðlinga.
„Það skiptir miklu máli að fá tækifæri til að kynna þessi jákvæðu verkefni sem eru mikilvægur hluti af mótvægisaðgerðum okkar vegna framkvæmdarasks. Við höfum verið leiðandi í því að nýta gróðurþekju til að endurheimta vistkerfi samhliða framkvæmdum og höfum séð hversu vel þessar aðferðir geta virkað. Það er mikilvægt að miðla þessari þekkingu og reynslu svo fleiri sjái ávinninginn og vonandi taki sem flest fyrirtæki þessar aðferðir upp,“ segir Magnea.
Í heimsókninni sýndu nemendurnir sérstakan áhuga á sjálfbærum bakkavörnum í Andakíl og þeirri aðferðafræði sem liggur að baki frágangi með gróðurtorfum.
Að kynningunni lokinni fór Magnea með hópinn í vettvangsferð um svæðið við Hellisheiðarvirkjun þar sem nemendurnir skoðuðu gróðurtorfusvæði og uppgræðslusvæði þar sem meðal annars hafa verið notaðir víðigræðlingar.
Heimsókn nemenda Garðyrkjuskólans var kærkomið tækifæri til að sýna hvernig markviss vistheimt getur farið saman við orkuvinnslu og framkvæmdir og hvernig þekking og reynsla af slíkum verkefnum getur nýst víðar í samfélaginu.














