Frétt

·

Hellisheiðarvirkjun fagnar 20 ára afmæli!

Hellisheiðarvirkjun fagnar 20 ára afmæli!

Laugardaginn 24. október kl. 13:00–15:00

Orka náttúrunnar býður gestum og gangandi að fagna með okkur 20 ára afmæli Hellisheiðarvirkjunar laugardaginn 24. október. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem gestir geta kynnt sér starfsemi virkjunarinnar, fræðst um sögu hennar og notið skemmtilegra afmælisstunda.

Hellisheiðarvirkjun var gangsett árið 2006 og hefur síðan þá gegnt mikilvægu hlutverki í orkuöflun landsins. Virkjunin er stærsta jarðvarmavirkjun Íslands og framleiðir bæði heitt vatn og rafmagn. Á þessum tuttugu árum hefur starfsemin þróast mikið og Hellisheiði orðið mikilvægur vettvangur nýsköpunar, rannsókna og ábyrgrar nýtingar jarðvarma.

Við viljum fagna þessum tímamótum og bjóða fólki að kynnast virkjuninni og því fjölbreytta starfi sem þar fer fram. Það verður því nóg um að vera fyrir bæði unga sem aldna!

Dagskrá afmælishátíðarinnar

  • Sirkus Íslands mætir á svæðið með alls konar skemmtilegt sprell fyrir alla fjölskylduna.

  • Afmæliskaka og veitingar – við bjóðum upp á afmælisköku, kaffi og djús í tilefni dagsins.

  • Jarðhitasýningin opin öllum – gestir geta kynnt sér jarðhitann og hvernig við nýtum orku náttúrunnar.

  • Rútuferðir um Hengilssvæðið – boðið verður upp á leiðsögn um sögu svæðisins og starfsemi ON. Brottfarir verða kl. 13:30, 14:00 og 14:30.

  • Leiðsögn um ganga virkjunarinnar – einstakt tækifæri til að skyggnast inn í starfsemi Hellisheiðarvirkjunar og kynnast því sem gerist á bak við tjöldin.

Komdu og fagnaðu með okkur!

Við hlökkum til að taka á móti gestum á Hellisheiði og fagna þessum merku tímamótum saman.

Hvar: Hellisheiðarvirkjun
Hvenær: Laugardaginn 24. október 2026
Tími: Kl. 13:00–15:00

Við hlökkum til að sjá ykkur! 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!