Frétt

·

Nýsköpun og viðskiptaþróun í Orkunni í náttúrunni

Hvernig verða góðar hugmyndir að verkefnum og hvernig má skapa enn meiri verðmæti úr auðlindum jarðhitans? Í nýjum þætti af Orkunni í náttúrunni ræða þær Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON, og Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri, um störf sín, tækifærin fram undan og það sem veitir þeim innblástur.

Starfsemi ON spannar vítt svið, frá raforkusölu til heimila og fyrirtækja yfir í orkuskipti og fjölnýtingu auðlinda í Jarðhitagarði. Í þættinum fá hlustendur innsýn í hvernig viðskiptaþróun og nýsköpun styðja við þessa fjölbreyttu starfsemi og skapa grundvöll fyrir ný verkefni.

Góðar hugmyndir og vandað val

Verkefni Viðskiptaþróunar ON snúa meðal annars að raforkusölu til stærri notenda og samtölum við fyrirtæki sem vilja byggja upp eða efla starfsemi sína. Þar koma við sögu ólík verkefni, meðal annars í landeldi.

Að hitta fólk með metnaðarfullar hugmyndir er að sögn Margrétar Lilju einn skemmtilegasti hluti starfsins. Verkefnin geta skapað verðmæti og tækifæri fyrir samfélagið, en þar sem auðlindirnar eru takmarkaðar skiptir máli að vanda valið. Það veitir henni jafnframt innblástur að sjá hugmyndir verða að veruleika, eins og hjá fyrirtækjunum í Jarðhitagarðinum sem hafa smám saman byggt upp og aukið starfsemi sína.

Að tendra Glóð í Jarðhitagarði

Hjá Ingunni eru tvö stór viðfangsefni í brennidepli; að efla nýsköpunarmenningu innan ON og þróa Glóð, miðstöð nýsköpunar í Jarðhitagarði.

Innan fyrirtækisins snýst verkefnið um að virkja hugmyndir starfsfólks og skapa rými til að þróa þær og prófa. Í Glóð er markmiðið að skapa vettvang fyrir rannsóknir og nýsköpun sem stuðla að betri nýtingu auðlindanna. Meðal spennandi möguleika er að veita aðgang að fullheitu skiljuvatni til rannsókna og þróunar.

Ingunn lýsir hlutverki sínu sem því að tendra Glóðina. Fjölbreytnin og tækifærið til að vera aflvaki og láta hluti gerast séu meðal þess sem geri starfið svo skemmtilegt.

Fleiri tækifæri í auðlindunum

Í þættinum ræða þær einnig hvernig nýta megi fleiri strauma úr starfsemi virkjananna og skapa þannig aukin verðmæti úr auðlindunum. Í Jarðhitagarði er þegar unnið að fjölnýtingu, en enn eru fjölmörg tækifæri til staðar. Meðal hugmynda í þróun eru baðlón sem gætu nýtt skiljuvatn sem ekki er nýtt í dag, þótt slíkum verkefnum fylgi líka áskoranir.

Nýsköpun á sér jafnframt stað víðar í starfsemi ON og verður sérstakur fundur, Nýsköpun í orku náttúrunnar, tileinkaður henni þann 4. nóvember kl. 9-11. Sjá nánari upplýsingar um fundinn og skráningu á hann hér.

Hlusta má á samtalið í heild sinni í nýjasta þætti Orkunnar í náttúrunni.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!