Viðburður

·

Nýsköpun í orku náttúrunnar

Morgunviðburður ON - Nýsköpun í orku náttúrunnar

Hvernig verður hugmynd í orkugeiranum, að lausn?

Orka náttúrunnar býður til morgunfundar í höfuðstöðvunum að Bæjarhálsi 1, miðvikudaginn 4. nóvember frá klukkan 09:00 - 11:00. Léttar veitingar í boði.

Á fundinum skoðum við nýsköpun í framkvæmd. Við heyrum um verkefni í þróun hjá ON og fáum ólík sjónarhorn á rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun í íslenskum orkugeira.

Skráðu þig á morgunfundinn

Aðgangur er ókeypis, en þörf er á skráningu vegna takmarkaðs sætaframboðs. 

Aðgangur er ókeypis, en þörf er á skráningu vegna takmarkaðs sætaframboðs. 

Dagskrá:

  • Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar

  • Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar

  • Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON. Frá stefnu í framkvæmd: Nýsköpun hjá ON

  • Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofu. Íslensk orka og einkaleyfi

  • Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON. Birta Bæjarháls eftir skýjað sumar

  • Dr. Sigrún Nanna Karlsdóttir, prófessor, Háskóli Íslands. Efnisrannsóknir og nýsköpun í jarðhitanýtingu

  • Sigurður Hafsteinn Markússon, leiðtogi djúpnýtingar, Orkuveitan. Orkuvinnsla með ofurheitum jarðhita.

Á fundinum fáum við einnig innsýn í umhverfisaðgerðir ON, kynnumst Ultrasonic hreinsunarverkefninu og lofthreinsistöðinni Steingerði sem gerir Hellisheiðarvirkjun nær kolefnishlutlausa.


Við hlökkum til að taka á móti þér.