Frétt
·
Lofthreinsistöðin Steingerður skilar frábærum árangri í föngun koldíoxíðs

Nýjustu rekstrarniðurstöður frá lofthreinsistöðinni Steingerði við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar sýna framúrskarandi árangur.
Á tímabilinu 1. júlí 2025 til 30. júní 2026 var 99,6% þess koldíoxíðs (CO₂) og allt brennisteinsvetni (H₂S) sem barst inn í föngunarkerfi lofthreinsistöðvarinnar leyst upp í vatni og sent til varanlegar bindingar í berggrunninum. Slík föngun er fyrsta stig bindingar á koldíoxíði og sýna niðurstöðurnar mikla skilvirkni Steingerðar, sem er samstarfsverkefni Carbfix og Orku náttúrunnar við Hellisheiðarvirkjun .
Náttúrulegu ferli hraðað
Carbfix aðferðin er sú sama og náttúruleg kolefnishringrás byggir á sem tekur árþúsundir en tækni Carbfix bindur koldíoxíðið strax í vatninu með Steingerði og umbreytir því svo í nýjar steindir innan tveggja ára með því að dæla kolsýrða vatninu í berglögin á svæðinu. Með því dregur starfsemin úr loftslagsáhrifum jarðvarmavinnslunnar og stuðlar jafnframt að öruggri og hagkvæmri meðhöndlun brennisteinsvetnis. Á tímabilinu var rúmlega 19 þúsund tonnum af CO₂ dælt niður um eldri jarðhitaholur sem nýtast nú til niðurdælingar.
Mikilvæg staðfesting á tækninni
Hellisheiðarvirkjun ON hefur verið í fararbroddi á heimsvísu við að draga úr losun frá jarðvarmavinnslu og gegnir Steingerður þar lykilhlutverki. Rekstrarniðurstöðurnar sýna mikla nýtni föngunartækninnar og staðfesta virkni hennar í samfelldum rekstri.
Frá því Carbfix-aðferðin var tekin í notkun á Hellisheiði hafa meira en 120 þúsund tonn af CO₂ og yfir 50 þúsund tonn af H₂S verið bundin í bergi.
Hönnun og bygging Steingerðar er lykilþáttur í svokölluðu Silfurberg verkefni sem hlaut tæplega 3,9 milljóna evra styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Stuðningurinn hefur verið mikilvægur við þróun og stækkun tækninnar og stuðlað að aukinni þekkingu á því hvernig nýta má íslenskt hugvit og verkþekkingu til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.














