Frétt
·
Nýtt ON app væntanlegt

Orka náttúrunnar er um þessar mundir að undirbúa útgáfu á nýju og betra ON appi. Markmiðið er að gera hleðsluupplifun viðskiptavina enn betri. Nýja appið fer í loftið þriðjudaginn 1. september.
Um leið og nýtt app fer í loftið munu allir hleðsluviðskiptavinir ON þurfa að setja inn kortaupplýsingar í nýtt og uppfært app. Þetta er mjög mikilvægt skref svo hægt sé að halda áfram að hlaða á hleðslustöðvunum okkar.
Þetta á einnig við um þau sem nota einungis ON lykilinn, forsenda þess að nota ON lykilinn eftir útgáfu nýja appsins er að greiðslukortaupplýsingar séu skráðar í appinu.
Sjá nánari upplýsingar og leiðbeiningar hér.
Við hlökkum til að kynna nýtt viðmót og aukna möguleika í ON appinu.














