Frétt

·

Vel heppnaður Fjölskyldudagur ON á Hellisheiði

Fjölskyldudagur ON var haldinn síðastliðinn sunnudag í Jarðhitasýningunni í Hellisheiðarvirkjun og tókst afar vel. Fjöldi gesta lagði leið sína í virkjunina til að njóta skemmtilegrar dagskrár fyrir alla fjölskylduna og kynna sér um leið hvernig Orka náttúrunnar nýtir krafta jarðar til að framleiða rafmagn og heitt vatn fyrir samfélagið.

Líf og fjör var í Jarðhitasýningunni þar sem Vísinda Villi, Stjörnu Sævar og Sirkus Íslands tóku á móti gestum með fræðslu og skemmtun við allra hæfi. Börnin nutu þess að fá andlitsmálningu, blöðrur og taka þátt í fjölbreyttri afþreyingu á meðan bæði fullorðnir og börn skoðuðu sýninguna og fræddust um undur jarðhitans og mikilvægi hans fyrir daglegt líf.

Fjölskyldudagurinn hefur fest sig í sessi sem skemmtileg árleg hefð hjá ON og er mikilvægur liður í því að opna dyr virkjunarinnar fyrir almenningi, vekja forvitni um jarðhita og skapa jákvæð tengsl við nærsamfélagið.

Við þökkum öllum þeim sem komu og gerðu daginn eftirminnilegan og hlökkum til að taka á móti gestum aftur á næsta Fjölskyldudegi ON að ári.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!