Frétt
·
ON verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands

Orka náttúrunnar hefur undirritað samkomulag um að gerast formlegur bakhjarl Uppsprettu Suðurlands, hátíðar vaxtar og verðmætasköpunar.
Uppspretta sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði og tengslamyndun þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög og almenningur koma saman. Að baki hátíðinni standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands með það markmið að efla nýsköpun og verðmætasköpun á Suðurlandi.
Sammerkt sýn á sjálfbærni og verðmætasköpun
Orka náttúrunnar rekur Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun á Suðurlandi og hefur um árabil lagt áherslu á nýsköpun og fjölþætta nýtingu auðlinda. Í Jarðhitagarði ON á Hellisheiði eru afurðir Hellisheiðarvirkjunar nýttar til fjölbreyttrar starfsemi og þar stendur nú yfir þróun og uppbygging á nýsköpunarmiðstöðinni Glóð. Þegar miðstöðin verður tekin í notkun mun hún bjóða sprotafyrirtækjum og frumkvöðlum nýjan vettvang til að stíga sín fyrstu skref og nýta strauma hringrásarhagkerfisins.
Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON, segir samstarfið falla vel að áherslum fyrirtækisins og að nýsköpun skipi stóran sess í starfsemi beggja aðila.
„Við fögnum þessu metnaðarfulla framtaki SASS og samstarfsaðila og erum spennt að styðja við Uppsprettu. Hátíðin fellur vel að áherslum ON um sjálfbæra verðmætasköpun, nýsköpun og öflugt atvinnulíf. Sem atvinnurekandi á svæðinu viljum við bæði efla nýsköpun í eigin starfsemi og styðja við hugmyndir og lausnir annarra, meðal annars í Jarðhitagarði og Glóð, fyrirhugaðri miðstöð nýsköpunar, á Hellisheiði.“

Samstaða um uppbyggingu atvinnulífs
Hjá SASS er lögð mikil áhersla á að leiða saman öfluga aðila landshlutans til að stuðla að framþróun í atvinnulífi svæðisins. Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri hjá SASS, fagnar samkomulaginu og segir það undirstrika mikilvægi hátíðarinnar.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem stöndum að þessari hátíð að fá öflugan og leiðandi aðila eins og Orku náttúrunnar til liðs við þetta stóra verkefni. Uppsprettan er hugsuð sem hreyfiafl fyrir allt Suðurland og stuðningur ON sýnir í verki þann kraft og þá samstöðu sem býr í atvinnulífi landshlutans þegar kemur að því að efla nýsköpun í heimabyggð.“
Ráðstefna, sýningarsvæði og tengslamyndun
Uppsprettan verður haldin í fyrsta sinn í nóvember og er ætlað að vera vettvangur fyrir hugmyndir, samstarf og ný tækifæri á Suðurlandi. Hátíðin verður fjölbreyttur tveggja daga viðburður þar sem frumkvöðlar, fjárfestar, sunnlensk fyrirtæki og almenningur leiða saman hesta sína í Horseday-höllinni.
Dagskrá og frekari upplýsingar um viðburðinn má finna á heimasíðu Uppsprettu.














