Frétt
·
Til hamingju með dag íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16. september. Fyrir okkur hjá Orku náttúrunnar er Hengillinn sérstakur staður. Þar eru Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun þar sem við framleiðum heitt vatn og rafmagn úr jarðvarma.
Hengilssvæðið er á meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi og tengist þremur eldstöðvakerfum. Um leið er svæðið eitt vinsælasta útivistarsvæði landsins þar sem fólk nýtur stórbrotinnar náttúrunnar.
Á Hengilssvæðinu sést vel hvernig náttúra og orkuvinnsla fara saman. Neðanjarðar kraumar jarðvarminn sem nýtist til að hita heimili og knýja samfélagið áfram. Á yfirborðinu eru gönguleiðir, hraun, hverir og dalir sem þúsundir manna njóta allt árið um kring.
ON og Orkuveitan hafa, í samráði við sveitastjórnir á svæðinu, um árabil unnið að uppbyggingu og viðhaldi útivistarstíga í Henglinum. Í dag liggja þar yfir 130 kílómetrar af merktum leiðum fyrir fólk sem vill ganga, hlaupa eða hjóla um svæðið. Hengillinn er jafnframt viðkvæmt náttúrusvæði. Þess vegna skiptir máli að halda sig á merktum stígum og ganga vel um.
Orka náttúrunnar leggur ríka áherslu á að góðan frágang og landgræðslu á virkjanasvæðum fyrirtækisins og er markvisst unnið að endurheimt náttúrulegs gróðurs og umhverfis eftir rask.
Á Degi íslenskrar náttúru höfum við þetta sérstaklega ofarlega í huga og minnum okkur um leið á mikilvægi þess að nýta auðlindir af ábyrgð og umgangast náttúruna af virðingu.
Hér má lesa nánar um Hengilinn og nálgast kort af gönguleiðum.













