Frétt
·
Um 700 háskólanemar kynntu sér fjölbreyttan heim orkunnar

Elliðaárstöð fylltist af lífi þegar um 700 háskólanemar lögðu leið sína á árlegan Orku- og vísindadag Orkuveitunnar og dótturfélaga.
Orka náttúrunnar tók að sjálfsögðu þátt í deginum ásamt Orkuveitunni, Veitum, Ljósleiðaranum og Carbfix. Þar gafst nemendum tækifæri til að kynnast starfsemi fyrirtækjanna, hitta starfsfólk og fá innsýn í fjölbreytt verkefni og þau fjölmörgu tækifæri sem leynast innan samstæðunnar.
Orku- og vísindadagurinn skipar mikilvægan sess hjá okkur hjá ON. Við viljum að ungt fólk úr ólíkum námsgreinum þekki starfsemina okkar, verkefnin sem við vinnum að og þann fjölbreytta hóp fólks sem stendur þar að baki. Vonandi kveikjum við um leið áhuga hjá einhverjum þeirra sem gætu hugsað sér að starfa með okkur í framtíðinni, eða kynnast okkur síðar sem viðskiptavinir.
Sérfræðingar ON tóku á móti nemendum og sögðu frá verkefnum sínum og störfum. Fjölbreytnin er mikil enda starfar hjá ON fólk með margvíslegan bakgrunn, allt frá verkfræði, náttúruvísindum og tölvunarfræði til viðskiptafræði, félagsvísinda og verkefnastjórnunar.
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu nemendum sem kíktu til okkar í Elliðaárstöð fyrir komuna, áhugann og skemmtileg samtöl. Við hlökkum strax til næsta Orku- og vísindadags!

















