Frétt

·

Sérfræðingar ON á stærstu jarðhitaráðstefnu heims

Sérfræðingar frá Orku náttúrunnar taka þátt í World Geothermal Congress (WGC), stærstu jarðhitaráðstefnu heims, sem hefst í dag í Calgary í Kanada. WGC er haldin á þriggja ára fresti og þar koma saman helstu sérfræðingar, vísindafólk og fulltrúar stærstu fyrirtækja úr jarðhitageiranum, alls staðar að úr heiminum.

Við Íslendingar búum við þau lífsgæði að jarðhiti er sjálfsagður hluti af okkar daglega lífi. Við skrúfum frá krananum og förum í heita sturtu, förum í sund á köldum vetrardegi og nýtum raforkuna allar stundir án þess að hugsa út í það. Á alþjóðavettvangi er staðan þó oft allt önnur. Þar er jarðhiti enn sérhæfð auðlind sem mörg lönd eru rétt að byrja að nýta og víða er enn verið að byggja upp þá þekkingu og reynslu sem hefur þróast á Íslandi í áratugi.

Borprógamm og Jarðhitagarður ON

Þátttaka ON á WGC endurspeglar þá viðamiklu sérþekkingu sem byggst hefur upp hér á landi í nýtingu jarðhita. Ísland er í fremstu röð í heiminum þegar kemur að sjálfbærri nýtingu jarðvarma og sérfræðingar ON og annarra íslenskra fyrirtækja gegna lykilhlutverki í þeirri þróun, bæði hér heima og í vaxandi alþjóðlegu samstarfi.

Á ráðstefnunni munu sérfræðingar ON flytja fjölbreytt erindi sem fjalla meðal annars um nýsköpun í orkunýtingu, rekstur jarðhitavirkjana, boranir, orkuöryggi og þróun sjálfbærra innviða. Erindin endurspegla þá breidd sem einkennir starfsemi ON og þá reynslu sem fyrirtækið hefur byggt upp í rekstri tveggja stærstu jarðvarmavirkjana landsins.

Eitt erindanna flytur Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, þar sem hann fjallar um hið svokallaða borprógramm en það felur í sér borun á 16 nýjum borholum næstu tvö árin  og mikilvægi þess fyrir örugga og sjálfbæra orkuvinnslu til framtíðar.

Sérfræðiþekking íslenskra sérfræðinga á jarðvarma er ekki einungis bundin við beina nýtingu hans heldur einnig þá hringrásarhugsjón sem hugmyndafræði Jarðhitagarðs ON við Hellisheiðarvirkjun byggist á. Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs, verður á meðal fulltrúa ON á ráðstefnunni og kynnir hvernig samstarf fyrirtækja, vísinda og nýsköpunar innan Jarðhitagarðsins hefur skapað alþjóðlega athygli og ný tækifæri í fullnýtingu auðlinda og hringrásarhagkerfi.

Íslensk þekking vekur athygli

Jarðhiti hefur verið einn af hornsteinum íslensks samfélags um áratugaskeið. Þekkingin sem byggst hefur upp hér á landi vekur sífellt meiri athygli erlendis, sérstaklega nú þegar heimurinn glímir við loftslagsbreytingar, orkuskort og óöryggi í orkumálum, áhersla á orkuskiptin er gríðarmikil víðast hvar og þjóðir heims leita leiða til að tryggja sjálfbæra og örugga orkugjafa.

Þátttaka ON á World Geothermal Congress er hluti af því að miðla þeirri reynslu, efla alþjóðlegt samstarf og halda áfram að þróa lausnir sem styðja við orkuskipti og sjálfbæra framtíð auk þess sem okkar sérfræðingar geta sótt sér þekkingu frá öðrum sérfræðingum í bransanum.

 

 

 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!