Frétt

·

Apr 1, 2026

ON semur við Monta um nýtt þjónustukerfi og app

Orka náttúrunnar hefur samið við Monta um nýtt þjónustukerfi og app fyrir hleðslustöðvar sínar. Samningar náðust í kjölfar útboðs sem fram fór í vetur en Monta er reynslumikið fyrirtæki á sviði hleðslulausna. Samstarfið markar mikilvæg skref í áframhaldandi uppbyggingu hleðsluinnviða og veitingu framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina ON.  

Hleðsluappið er notað í fjölmörgum löndum innan Evrópu og Bandaríkjanna við góðan orðstír en yfir milljón rafbílaeigendur nýta sér hnökralausa hleðslu í appinu í hverjum mánuði. 

Allt viðmót í nýju appi verður einstaklega notendavænt og hannað til þess að gera hverja hleðsluupplifun jákvæða. Appið býður upp á nýjungar sem verða smám saman settar í loftið í kjölfar fyrstu útgáfu, með það fyrir augum að styðja enn betur við upplifun viðskiptavina ON og orkuskiptin.   

„Við hjá ON erum sérstaklega spennt fyrir innleiðingunni á nýju appi og vitum að þetta mun falla vel í kramið hjá viðskiptavinum okkar og gera upplifun þeirra af því að hlaða hjá ON enn betri. Í raun má segja að við séum hér að setja ný viðmið í hleðslulausnum til viðskiptavina,“ segir Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri ON.  

Frá undirritun samnings ON og Monta. Á myndinni eru f.v. Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri, Svavar Helgi Jakobsson, sérfræðingur í rekstri og þróun stafrænna lausna, Óskar Páll Þorgilsson, rekstrarstjóri hleðslulausna, Ævar Örn Hermannsson, vörustjóri, Warith Suleiman, yfirfærslustjóri Monta, Zachary Ceulemans, innleiðingarstjóri Monta, Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri, Kristín Björk Bjarnadóttir, deildarstjóri sölu og þjónustu og Hilma Rós Ómarsdóttir, leiðtogi í gervigreind og gagnastefnu.


Unnið er að innleiðingu á kerfinu og gert er ráð fyrir að viðskiptavinir ON geti farið að nýta nýja appið innan fárra mánaða. Starfsfólk ON hlakkar mikið til að halda áfram að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu með áherslu á notendaupplifun og ánægju í nýju appi.  

Nánari upplýsingum verður komið til viðskiptavina á margvíslegan hátt áður en nýja appið fer í loftið.

Nýtt ON app - hvað þarf ég að vita og gera?


Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!