Frétt
·
ON fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þriðja árið í röð

Orka náttúrunnar hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 hjá Keldunni og Viðskiptablaðinu. Þetta er þriðja árið í röð sem ON hlýtur viðurkenninguna fyrir traustan og heilbrigðan rekstur.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng fjárhagsleg viðmið, meðal annars um jákvæða afkomu, tekjur, eignir og eiginfjárhlutfall. Hún endurspeglar þannig stöðugleika og góðan árangur í rekstri.
„Við erum stolt af þessari viðurkenningu sem er afrakstur góðrar vinnu okkar starfsfólks. Traustur rekstur gerir okkur kleift að horfa til framtíðar, fjárfesta í innviðum og sinna því mikilvæga hlutverki að sjá heimilum og atvinnulífi fyrir orku. Það skiptir máli að vanda til verka á hverjum degi,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON.
Hjá ON fara ábyrgur rekstur og uppbygging til framtíðar saman. Fyrirtækið leggur áherslu á að nýta auðlindir vel, tryggja áreiðanlega þjónustu og skapa svigrúm til fjárfestinga sem mæta vaxandi orkuþörf samfélagsins.















