Frétt
·
Tímamót þegar einni af fyrstu hleðslustöðvum landsins var skipt út

Ein af fyrstu hleðslustöðvum fyrir rafbíla á Íslandi hefur nú verið tekin niður og ný og öflugri stöð sett í hennar stað.
Stöðin, sem var staðsett við IKEA, var sett upp, árið 2014, á þeim tíma þegar rafbílar voru enn fátíð sjón á íslenskum vegum. Fáir bílar voru í umferð og enn færri höfðu trú á því að rafbílar ættu eftir að verða stór hluti af bílaflota landsins.
ON og IKEA sáu hins vegar tækifærið og höfðu trú á orkuskiptunum. Með uppsetningu stöðvarinnar var stigið mikilvægt skref í að byggja upp þá innviði sem þurfti til þess að rafbílavæðingin gæti orðið að veruleika.
Síðan þá hefur rafbílum fjölgað hratt, notkun hleðslunetsins hefur aukist og hleðslutæknin hefur þróast mikið. Stöðin gamla hefur því lokið sínu hlutverki og í hennar stað er komin ný stöð sem mætir betur þörfum ökumanna í dag.
„Þetta eru stór tímamót í okkar huga; að taka niður eina af fyrstu stöðvunum okkar. Hún hefur þjónað sínu hlutverki vel og var löngu komin á tíma. Þegar hún var sett upp var viðhorfið í þjóðfélaginu allt annað og þótti það jafnvel sérviska að vera á rafbíl. Í dag er þetta allt annað og það sem áður þótti fjarlæg framtíðarsýn orðið hluti af hversdeginum,“ segir Kristinn Steinn Traustason sérfræðingur í uppbyggingu innviða hjá ON.
ON þakkar gömlu stöðinni fyrir góð störf og heldur áfram með orkuskiptin!














