Frétt
·
Kólnandi veður og rafbíllinn – 4 góð ráð fyrir kaldari daga

Haustið er farið að minna á sig, það dimmir fyrr á daginn og hitastigið færist nær núllinu. Við finnum öll fyrir þessum breytingum og það sama á við um rafbílana okkar. Þegar kólnar getur orkunotkun aukist, drægnin minnkað og hleðslan tekið lengri tíma en við eigum að venjast.
Með nokkrum einföldum ráðum og með því að þekkja bílinn sinn og nýta þá eiginleika sem hann býður upp á er hægt að nýta orkuna betur, gera aksturinn þægilegri og vera betur undirbúin þegar kuldinn lætur finna fyrir sér.
Hér höfum við tekið saman nokkur góð ráð sem við teljum að geti komið sér vel á kaldari dögum.
Ráð #1
Forhitaðu bílinn
Það er fátt betra en að setjast inn í hlýjan bíl á köldum morgni. Ef þú hefur tök á því er sniðugt að forhita rafbílinn á meðan hann er enn tengdur við hleðslu.
Þannig geturðu nýtt rafmagn úr hleðslunni til að hita farþegarýmið í stað þess að ganga á orku rafhlöðunnar þegar lagt er af stað. Þetta getur bæði aukið þægindin og hjálpað til við að varðveita drægnina.
Ráð #2
Taktu tillit til minni drægni
Hefurðu tekið eftir því að rafbíllinn kemst styttra á hverri hleðslu þegar kólnar?
Það er eðlilegt. Við lægra hitastig getur rafhlaðan orðið síður skilvirk og meiri orka fer í að hita bæði farþegarýmið og rafhlöðuna sjálfa.
Hversu mikil áhrifin eru fer meðal annars eftir bíltegund, hitastigi, aksturslagi og veðuraðstæðum. Það er því gott að hafa í huga að uppgefin drægni getur verið önnur en sú sem þú upplifir á kaldari dögum.
Ráð #3
Undirbúðu rafhlöðuna fyrir hraðhleðslu
Köld rafhlaða getur tekið hægar við hleðslu en þegar hún er við kjörhitastig.
Margir nýrri rafbílar bjóða upp á þann möguleika að forhita rafhlöðuna áður en komið er að hraðhleðslustöð. Í sumum bílum gerist þetta sjálfkrafa þegar hleðslustöð er valin sem áfangastaður í leiðsögukerfinu.
Með því að nýta þennan eiginleika, ef hann er til staðar í bílnum þínum, geturðu stuðlað að hraðari og skilvirkari hleðslu.
Ráð #4
Fylgstu með aksturslagi og loftþrýstingi
Það er ekki bara hitastigið sem hefur áhrif á orkunotkun rafbílsins. Aksturshraði, vindur og færð geta líka skipt töluverðu máli.
Með jöfnum og yfirveguðum akstri geturðu dregið úr orkunotkun, sérstaklega þegar mótvindur er mikill eða aðstæður erfiðar.
Það er líka gott að fylgjast með loftþrýstingi í dekkjum. Þegar hitastigið lækkar getur þrýstingurinn minnkað og of lítill loftþrýstingur aukið orkunotkun. Réttur loftþrýstingur og dekk sem henta aðstæðum stuðla því bæði að betri orkunýtingu og öruggari akstri.














