Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Mar 3, 2026

Nýsköpun í forgangi og ON áfram leiðandi

Nýrri nýsköpunarstefnu Orku náttúrunnar er ætlað að efla nýsköpun og rannsóknir innan fyrirtækisins. Með aukinni áherslu á nýsköpun vill ON tryggja sjálfbæran rekstur, tæknilega forystu og hæfni fyrirtækisins til að standast breytingar og áskoranir til lengri tíma.

Stefnan mótar skýran ramma utan um nýsköpunarstarfsemi ON og tryggir farveg fyrir hugmyndir, þróun og samstarf. Stjórn ON samþykkti nýsköpunarstefnuna á dögunum.  

Nýsköpun í áratugi

„Orka náttúrunnar er í grunninn nýsköpunarfyrirtæki. Í nærri hundrað ár hefur fyrirtækið, sem hluti af Orkuveitunni, byggt upp innviði, þjónustu og lausnir sem hafa mótað samfélagið og nýtingu orkuauðlinda landsins. Saga ON og móðurfélags þess er saga nýsköpunar, framsýni og tæknilegrar þróunar. Í dag er mikill kraftur og gróska í nýsköpun innan ON og fjölmörg verkefni í gangi sem miða að umbótum, aukinni sjálfbærni og nýjum lausnum í orku- og loftslagsmálum“, segir Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON.

Ingunn segir að með nýrri nýsköpunarstefnu verði þessi kraftur virkjaður enn frekar. „Markmiðið er að skapa heildstæða umgjörð sem styður við frumkvæði, styrkir rannsóknir og tryggir að hugmyndir fái skýra og markvissa meðferð. Nýsköpun er gerð að eðlilegum hluta af daglegu starfi, ekki viðbót ofan á reksturinn heldur drifkraftur umbóta og framfara.“

Glóð verður miðstöð nýsköpunar

Ein af megináherslum stefnunnar er að nýsköpun sé ekki viðbót ofan á hefðbundin störf heldur eðlilegur hluti af þróun og stöðugum umbótum í starfseminni. „Við leggjum áherslu á að skapa öruggt umhverfi þar sem hvatt er til tilrauna, nýrra leiða og lærdóms,“ segir Ingunn og bætir við að skýr farvegur verði fyrir allar nýsköpunarhugmyndir og að faghópur nýsköpunar muni hafa yfirsýn yfir verkefni og styðja við þróun þeirra. „Stjórnendur bera ábyrgð á að skapa rými fyrir nýsköpun innan sinna eininga, styðja við hugmyndir og tryggja að verkefni fái viðeigandi stuðning. Allt starfsfólk er hvatt til að koma auga á tækifæri til umbóta, leggja fram hugmyndir og taka þátt í þróunarverkefnum. Glóð, fyrirhuguð miðstöð nýsköpunar í Jarðhitagarði ON, verður jafnframt vettvangur fyrir þróun hugmynda, prófanir og þverfaglegt samstarf.“

Tölvugerð mynd af Glóð, fyrirhugaðri miðstöð nýsköpunar í Jarðhitagarði ON.

Lykillinn að framtíðinni

Nýsköpun er lykillinn að lausnum við áskorunum nútímans og mótun sjálfbærrar framtíðar. „Án nýsköpunar stöndum við í stað. Þá verða engar nýjar lausnir þróaðar og engin framþróun. Fyrir ON er nýsköpun forsenda þess að fyrirtækið geti áfram verið leiðandi í orku- og loftslagslausnum og brugðist við síbreytilegum kröfum samfélags og markaðar," segir Ingunn.

Með markvissri nýsköpun vill ON:

  • auka skilvirkni, öryggi og hagræðingu í rekstri

  • bæta nýtingu og stýringu auðlinda, búnaðar og innviða

  • styðja við tækniþróun og framfarir

  • skapa verðmæti og nýjar tekjustoðir til lengri tíma

  • bæta starfsumhverfi, starfsánægju og hæfni starfsfólks

Áherslurnar snúa þannig bæði að því að gera reksturinn betri í dag og fyrirtækið sterkara til framtíðar.

Nýsköpunarstefnan gildir fyrir alla starfsemi ON og verður endurskoðuð reglulega. Með henni er lagður traustur grunnur að því að ON haldi áfram að vera leiðandi á sviði nýsköpunar í orku- og loftslagsmálum og efli það hugarfar sem hefur borið fyrirtækið áfram í heila öld.

Hér er hægt að lesa nýsköpunarstefnu ON.

 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!