Fréttir
15. maí 2019

Ný fjölorkustöð við Miklubraut býður vetni og rafmagn frá ON

Forseti Íslands tók í dag formlega í notkun nýjustu og fjölbreyttustu fjölorkustöð landsins. Orka náttúrunnar kemur að stöðinni með tvennum hætti.

Það var bensínstöð Orkunnar norðan Miklubrautar sem tók þessum jákvæðu gerbreytingum í dag. Þarna geta ökumenn og aðrir notendur geta keypt nær alla endurnýjanlega orkugjafa sem framleiddir eru til samgangna í landinu, auk jarðefnaeldsneytis. Metangasið kemur frá urðunarstað SORPU í Álfsnesi, hraðhleðsla fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla frá Orku náttúrunnar og þá verður hægt að fá vetni frá Orku náttúrunnar sem framleitt er með rafgreiningu í Hellisheiðarvirkjun.

Fjölorkustöðin við Miklubraut er samstarfsverkefni sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og er styrkt af Evrópusambandinu um tvær milljónir evra. Verkefnisstjórn og þróun hefur verið í höndum Íslenskrar NýOrku en stöðin verður rekin og er í eigu Skeljungs hf.  Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flutti ávarp og tók þátt í hlaða bíla  með innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum rafmagni frá ON, metani frá Sorpu og vetni af Hellisheiði.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ON:
„Við erum stolt af okkar hlut í þessari fyrstu fjölorkustöð á Íslandi. Við höfum rekið hlöðu fyrir rafbíla hér handan götunnar um árabil og fjölorkustöðin er tákn nýrra tíma. Hér útvegum við vetni auk rafmagns og hér fá eigendur metanbíla líka áfyllingu. Það er hlutverk okkar hjá ON að þjóna þeim sem velja vistvæna orku og við sinnum þeim skyldum í þágu umhverfisins með ánægju“.

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku:

„Það er einstakt að fá að taka þátt í opnun stöðvar sem býður alla vistvæna kosti á Íslandi. Orkan er að taka risaskref í samfélagslegri ábyrgð og ég er sannfærður um að þessa dags verður minnst í orkusögu þjóðarinnar. Nú er mikilvægt að fyrirtæki og opinberir aðilar fylgi fordæmi Orkunnar og setji sér markmið að kaupa aðeins bíla sem nota vistvænt eldsneyti þannig að eftirspurn aukist og hægt verði að byggja upp enn frekari innviði.“

Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs:

Það eru tímar breytinga í samgöngum sem í felast bæði tækifæri og áskoranir. Við höfum mótað okkur skýra stefnu og ætlum að vera leiðandi í þeim breytingum, vinna þær í sátt við samfélagið og með opnun fjölorkustöðvarinnar á Miklubraut sýnum við það í verki. Orkan sem orkufélag framtíðarinnar fagnar því þessum áfanga í sögu félagsins.“

Björn Hafsteinn Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU:

SORPA hefur framleitt ökutækjaeldsneytið metan allt frá árinu 2001 með góðum árangri. Eldsneytið metan er eina umhverfisvottaða eldsneytið á Íslandi og er alíslenskt.  Starfsemi SORPU hefur því óslitið í nær tvo áratugi gefið af sér verulegan umhverfislegan ávinning.  Af þessum staðreyndum er starfsfólk SORPU ákaflega stolt.“

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.