Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Feb 12, 2026

Miklir möguleikar í samstarfi ON og Ölfus Cluster

Orka náttúrunnar og Ölfus Cluster skrifuðu á dögunum undir viljayfirlýsingu um samstarf um rannsóknir og nýsköpun á sviði sjálfbærrar auðlindanýtingar, umhverfisverndar og orkuskipta. Samstarfið tekur bæði til þróunar sameiginlegra verkefna og gagnkvæms stuðnings í verkefnum hvors aðila fyrir sig, m.a. með því að miðla sérfræðiþekkingu og reynslu og veita faglegan stuðning.

„Við erum mjög ánægð með að stíga þetta skref með ON og sjáum mikla möguleika í samstarfi um rannsóknir og nýsköpun sem styður við sjálfbæra framtíð,“ sagði Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Ölfus Cluster

Ölfus Cluster er þekkingarklasi fyrirtækja og opinberra aðila sem koma að nýsköpun, vöruþróun og rannsóknum. ÖC vinnur að uppbyggingu atvinnulífs í Ölfusi og víðar á Suðurlandi með sérstaka áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu.

Samstarf við Ölfus Cluster fellur vel að áherslum Orku náttúrunnar og starfsemi Jarðhitagarðs ON sem er grænn iðngarður við Hellisheiðarvirkjun. Þar er lögð áhersla á hringrásarhugsun og sjálfbæra nýsköpun til að fullnýta jarðhitaafurðir virkjunarinnar. Innan Jarðhitagarðsins er í mótun Glóð, miðstöð nýsköpunar, sem mun veita aðstöðu fyrir rannsóknir og nýsköpun með aðgengi að jarðhitaauðlindum en eitt af markmiðum viljayfirlýsingar ON og ÖC er að meta hvort verkefni geti verið staðsett í Glóð.

„Með Ölfus Cluster fáum við öflugan samstarfsaðila sem deilir okkar sýn um að nýta þekkingu, aðstöðu og auðlindir til að skapa lausnir sem gagnast bæði atvinnulífi og samfélagi til lengri tíma,“ segir Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON sem undirritaði yfirlýsinguna ásamt þeim Páli Marvin og Evu Lind Guðmundsdóttur, verkefnastjóra hjá ÖC, og Helgu Kristínu Jóhannsdóttur, deildarstjóra Jarðhitagarðs ON.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!