Frétt
·
Kristín Guðmundsdóttir hlýtur fyrstu IPMA-vottun Íslands í verkefnaskráarstjórnun

Kristín Guðmundsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu Orku náttúrunnar, hefur hlotið IPMA Level B – Portfolio Management vottun. Um er að ræða tímamótaáfanga, þar sem þetta er fyrsta IPMA-vottunin í verkefnaskráarstjórnun (Portfolio Management) sem veitt er á Íslandi.
IPMA-vottanir eru alþjóðlega viðurkenndar fagvottanir á sviði verkefnastjórnunar og eru veittar einstaklingum sem sýna fram á víðtæka þekkingu, reynslu og hæfni samkvæmt ströngum alþjóðlegum viðmiðum. Vottunin í verkefnaskráarstjórnun er ætluð sérfræðingum og stjórnendum sem bera ábyrgð á að samræma og stýra verkefnasöfnum þannig að þau styðji við stefnu og markmið fyrirtækja og stofnana.
Kristín hefur starfað hjá Orku náttúrunnar í rúman áratug og gegnt lykilhlutverki í þróun verkefnastjórnunar innan fyrirtækisins. Í dag ber hún ábyrgð á verkefnastofu ON og verkefnaskrá fyrirtækisins, sem samanstendur af fjölmörgum fjárfestingaverkefnum sem hafa mikilvægt stefnumótandi gildi fyrir starfsemina.
Á ferli sínum hefur Kristín leitt uppbyggingu verklags og verkfæra sem styðja við markvissa framkvæmd verkefna og upplýsta ákvarðanatöku. Þá hefur hún markvisst unnið að því að efla þekkingu og færni starfsfólks í verkefnastjórnun með fræðslu, ráðgjöf og miðlun reynslu. Með þeirri vinnu hefur hún stuðlað að auknu samstarfi, skilvirkari vinnubrögðum og sterkari verkefnamenningu innan fyrirtækisins.
Auk starfa sinna hjá Orku náttúrunnar hefur Kristín verið virk í Verkefnastjórnunarsamfélagi Íslands. Hún hefur flutt erindi á vegum VSF, tekið þátt í starfi faghópa og átt stóran þátt í að byggja upp öflugt samfélag ungra verkefnastjóra með setu sinni í stjórn Félags ungra verkefnastjóra.
Vottunin markar mikilvægan áfanga á ferli Kristínar og er jafnframt staðfesting á þeirri sérþekkingu og reynslu sem hún hefur byggt upp á sviði verkefna- og verkefnaskráarstjórnunar. Jafnframt undirstrikar hún aukið vægi verkefnaskráarstjórnunar sem faggreinar og mikilvægi hennar fyrir árangursríka stefnumótun og framkvæmd verkefna í íslensku atvinnulífi.

Fréttir

Viltu fá fréttir frá okkur?
Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!