Frétt
·
Dec 2, 2025
Jólaleikur ON í fullum gangi!

Jólaleikur Orku náttúrunnar er hafinn og stendur frá 1. desember til og með 31. desember. Því oftar sem hlaðið er því oftar fer þátttakandi í pottinn og á því meiri möguleika á að vinna til verðlauna.
Öll sem hlaða rafbílinn sinn á hleðslustöðvum ON á tímabilinu og greiða fyrir hleðsluna taka sjálfkrafa þátt í leiknum, svo lengi sem þau hafa samþykkt að fá ráðgjöf, leiki, tilboð, fréttabréf og annan markpóst frá Orku náttúrunnar.
Glæsilegir vinningar í boði
Aðalvinningar í Jólaleiknum eru tveir og fjórir aðrir vinningar verða dregnir úr pottinum í hverri viku í desember.
Aðalvinningar:
Gjafabréf fyrir 2 í Sky Lagoon
Gjafabréf fyrir 2 í Hvammsvík
Vikulegir vinningar:
Gjafabréf í Bónus
Gjafabréf fyrir tvo fullorðna á Undur íslenskrar náttúru í Perlunni
Gjafabréf á Krónikan veitingastaðnum í Gerðarsafni
Gjafabréf á Grillhúsinu í Borgarnesi
Vinningshafar verða dregnir úr hópi allra sem hafa hlaðið á hleðslustöðvum ON á tímabilinu 1.–31. desember. ON hefur svo beint samband við vinningshafa á því netfangi eða símanúmeri sem skráð er á aðganginn sem notaður var til að greiða fyrir hleðsluna.




