Frétt
·
Jarðhiti sem samkeppnisforskot

Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar, skrifaði grein sem birtist á Vísi sem fjallar um hvernig Hellisheiði hefur þróast í öflugan vettvang fyrir fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á orku, auðlindum og nýsköpun.
Í greininni bendir Helga Kristín á að staðsetning skipti sífellt meira máli í heimi þar sem samkeppni um hreina orku, innviði og hæft starfsfólk fer vaxandi. Fyrirtæki sem reiða sig á orku, varma og vatn þurfi aðgang að traustum innviðum og umhverfi sem styður uppbyggingu og vöxt til lengri tíma.
Jarðhitagarðurinn á Hellisheiði býður fyrirtækjum aðgang að endurnýjanlegri raforku, varmaorku á mismunandi hitastigum, heitu og köldu ferskvatni, jarðhitavökva og steinefnum auk sameiginlegra innviða og skipulagðra lóða til uppbyggingar.
Í greininni er jafnframt fjallað um hvernig nálægðin við höfuðborgarsvæðið skapar sérstaka samkeppnisstöðu. Í aðeins um tuttugu mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík fá fyrirtæki aðgang að sérhæfðu vinnuafli, háskólasamfélagi, rannsóknastofnunum og öflugu nýsköpunarumhverfi. Þessi samsetning auðlinda, innviða og þekkingar sé sjaldgæf á alþjóðlegan mælikvarða.
Einnig er horft til framtíðar í greininni en frá og með árinu 2027 verður aukin áhersla lögð á að skapa fyrirtækjum aðstöðu í Jarðhitagarði til að prófa nýjar hugmyndir og tæknilausnir við raunverulegar aðstæður. Þar mun ný miðstöð nýsköpunar og rannsókna, Glóð, gegna lykilhlutverki og styðja við þróun lausna sem byggja á orku og auðlindum svæðisins.
Greinin var skrifuð í aðdraganda World Geothermal Congress 2026, stærstu alþjóðlegu ráðstefnu jarðhitageirans, þar sem íslenskir sérfræðingar munu kynna þekkingu og reynslu Íslands á sviði jarðhita og ræða framtíðartækifæri í Jarðhitagarði sem og í geiranum öllum.
Lesa má grein Helgu Kristínar á Vísi í heild hér.













