Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

May 26, 2025

Framtíðin fær húsnæði - ný miðstöð nýsköpunar rís í Jarðhitagarði

Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, skrifaði á dögunum grein sem birtist á Vísi undir heitinu Framtíðin fær húsnæði. Þar greinir hún frá því hvernig ON undirbýr nú opnun nýrrar miðstöðvar nýsköpunar í Jarðhitagarðinum við Hellisheiðarvirkjun – miðstöð sem verður hjarta nýsköpunar, tengslamyndunar og þekkingarmiðlunar á sviði jarðvarma og sjálfbærni.

Miðstöðin mun bjóða upp á fjölbreytta og sveigjanlega aðstöðu fyrir frumkvöðla, vísindafólk og fyrirtæki sem vinna að lausnum í þágu hringrásar, sjálfbærrar auðlindanýtingar og orkutengdrar nýsköpunar. Þar verða vinnurými, aðstaða fyrir prófanir, sýningar og óformleg samskipti – allt með það að markmiði að efla þverfaglegt samtal og samvinnu.

Hvað á framtíðin að heita?

Þessa dagana stendur yfir nafnasamkeppni um nýju miðstöðina. Leitað er að nafni sem fangar anda staðarins: framsækni, sjálfbærni og samvinnu. Tillögum má skila inn á jardhitagardurinn.is og taka þannig þátt í að móta ímynd þessa heita reits til nýsköpunar.

Grein Ingunnar má lesa í heild sinni á Vísi: Framtíðin fær húsnæði

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!