Frétt
·
Feb 5, 2026
Einfaldari hleðsla fyrir erlenda ferðamenn

Orka náttúrunnar hefur gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Electroverse, sem er dótturfyrirtæki Octopus Energy. Með samstarfinu verða allar almennings hleðslustöðvar Orku náttúrunnar aðgengilegar í Electroverse appinu, á sama verði og Orka náttúrunnar býður almennum notendum. Hleðslunet ON er með þessu samstarfi hluti af yfir 1,3 milljónum hleðslustöðvum um alla Evrópu.
Electroverse býður upp á svokallaða „roaming“-þjónustu fyrir rafbílaeigendur, þar sem hleðslustöðvar frá mörgum rekstraraðilum geta verið sýnilegar í einu appi. Notendur geta í mörgum tilfellum hafið hleðslu beint í appinu, án þess að greiða aukalega fyrir þjónustuna.
Markmið ON með samstarfinu er fyrst og fremst að auðvelda erlendum ferðamönnum, ekki síst þeim sem ferðast á rafmagnsbílum frá bílaleigum, að hlaða bíla sína á Íslandi. Þörfin fyrir einfaldari lausn fyrir þennan hóp kom skýrt fram í samtali við fulltrúa bílaleigubransans, meðal annars á ráðstefnu Orku náttúrunnar í Hörpu síðasta haust.
„Við erum ánægð með samstarfið við þetta öfluga fyrirtæki sem er með skemmtilega nálgun á raforkumarkaðinn. Þetta ætti líka að hjálpa til við að liðka fyrir orkuskiptum hjá bílaleigum og auðvelda ferðamönnum að hlaða með einföldum hætti“ segir Óskar Páll Þorgilsson, rekstrarstjóri hjá Orku náttúrunnar.
Samstarfið er viðbót við staðgreiðslulausn Orku náttúrunnar, vefappið á app.on.is, sem einnig nýtist erlendum ferðamönnum vel og þeim sem ekki vilja sækja ON appið. Verð fyrir hleðslu er hið sama hvort sem notendur nýta Electroverse eða staðgreiðslulausn Orku náttúrunnar.
Fyrir viðskiptavini með heimarafmagn eða hleðsluáskrift ON verða sérkjör áfram í boði í gegnum ON appið eða með ON lyklinum.
Ef notendur lenda í vandræðum við hleðslu geta þeir haft samband við Orku náttúrunnar eða beint við Electroverse í gegnum appið.
Electroverse-appið er aðgengilegt bæði fyrir iOS og Android, auk þess sem boðið er upp á vefútgáfu og fyrir bifeiðar með Apple CarPlay & Android Auto.

Fréttir

Viltu fá fréttir frá okkur?
Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!