Frétt
·
May 16, 2025
Birna og Heiða nýjar í stjórn ON

Birna Bragadóttir og Heiða Aðalsteinsdóttir komu nýjar inn í stjórn Orku náttúrunnar á dögunum en Helga Jónsdóttir, stjórnarformaður, Ómar Svavarsson og Tómas Ingason sitja áfram í stjórninni.
Úr stjórninni fóru þær Brynja Kolbrún Pétursdóttir og Hólmfriður Sigurðardóttir.
Birna Bragadóttir er forstöðukona Frumkvöðlaseturs og vísindamiðlunar hjá Orkuveitunni. Áður gegndi hún starfi framkvæmdastjóra Sandhotels og starfaði sem ráðgjafi á sviði mannauðs- og menningarmála hjá Capacent og Befirst. Þá var hún starfsþróunarstjóri Orkuveitunnar og sinnti stjórnun á sviði mannauðs-, fræðslu- og þjónustu hjá Icelandair í rúman áratug. Birna hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr bæði opinberum og einkareknum fyrirtækjum og reynslu af stjórnarstörfum. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún lokið námi í Design Thinking frá MIT Sloan og er stjórnendamarkþjálfi frá Coach University.
Heiða Aðalsteinsdóttir hefur starfað í orkumálum í um áratug, nú síðast sem verkefnastjóri hjá Lögum, lendum og áhættu í Orkuveitunni. Þar áður leiddi Heiða skipulags- og umhverfismál og stefnuframkvæmd hjá Carbfix og starfaði á sviði Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni þar sem hún leiddi meðal annars vinnu við stefnumótun þvert á samstæðuna, skipulag, umhverfismat og samráð við hagaðila. Einnig hefur Heiða starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi í skipulagsmálum hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta. Heiða er löggiltur landslagsarkitekt frá University of Gloucestershire auk þess að hafa BA gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School.
Við þökkum Brynju Kolbrúnu og Hólmfríði kærlega fyrir óeigingjarnt og gott starf og hlökkum mikið til samstarfsins við þær Birnu og Heiðu.



