Frétt

·

Virkir notendur í nýju appi mun fleiri

Nýtt ON app fór í loftið á dögunum eftir um sjö mánaða undirbúning og umfangsmikla vinnu við að flytja hleðsluþjónustu ON yfir í nýtt kerfi. Yfirfærslan gekk afar vel, langflestir notendur voru komnir í nýtt app tveimur sólarhringum eftir að yfirfærslan hófst og virkum notendum í appinu hefur nú fjölgað um 60%.

Verkefnið fólst meðal annars í að flytja um 85 þúsund notendur, 40 þúsund hleðslulykla og um 6.600 hleðslustöðvar á rúmlega 2.000 staðsetningum yfir í nýtt kerfi. Á sama tíma þurfti að tryggja að þjónustan héldi áfram að virka eðlilega fyrir notendur.

Ein stærsta áskorunin var að tengja allt rétt saman þannig að réttur ON-lykill og rétt hleðslustöð væru tengd réttum notanda. Á hverjum sólarhring fara fram yfir 4.000 hleðslur á hleðsluneti ON. Þrátt fyrir umfangsmiklar breytingar gátu langflestir notendur haldið áfram að hlaða bíla sína án vandræða á meðan kerfisflutningurinn fór fram.

„Þetta er eitt stærsta stafræna verkefni sem við höfum ráðist í á sviði hleðsluþjónustu. Mælikvarðinn á árangur var einfaldur: að fólk gæti haldið áfram að hlaða bílana sína án vandræða. Það tókst mjög vel og nú getum við um leið boðið upp á nýja virkni sem gerir hleðslu enn einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini okkar. Við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir frábærar viðtökur. Verkefnið fól í sér að tugþúsundir notenda færðu sig yfir í nýtt app á skömmum tíma og við erum þakklát fyrir þann jákvæða hug sem við höfum fundið fyrir í gegnum allt ferlið,“ segir Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna.

Margar nýjungar í notendavænna appi

Nýja appið leggur grunn að fjölmörgum nýjungum sem auðvelda notendum að stjórna hleðslu sinni. Notendur í Hleðsluáskrift geta nú séð sína stöð beint í appinu og síðar verður hægt að nýta snjallhleðslu (e. smart charging) til að tímastýra hleðslu eftir þörfum.

Önnur mikilvæg nýjung er að notendur geta tengt bílinn sinn við appið og fylgst með stöðu rafhlöðunnar í rauntíma. Þá er hægt að sjá hleðslustöðu bílsins jafnvel þegar hlaðið er á AC-hleðslustöðvum. ON er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á þessa virkni.

Einnig býður ON nú upp á Autocharge á CCS-hraðhleðslustöðvum. Með Autocharge þarf notandinn ekki að auðkenna sig sérstaklega þegar hleðsla hefst. Það er einfaldlega nóg að stinga bílnum í samband og bíllinn sér sjálfur um auðkenninguna. Virknin er í boði í mörgum rafbílum, þó að ekki allir framleiðendur styðji hana.

Við erum virkilega ánægð með viðtökurnar sem nýja appið hefur fengið og hlökkum til að gera hleðsluupplifun viðskiptavina okkar enn betri.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!