Frétt
·
Apr 17, 2026
Við þurfum að klára orkuskiptin og vinna hraðar að því

Í umræðunum var fjallað um hvernig Ísland getur nýtt tækifærin sem felast í aukinni orkuöflun, nýsköpun og uppbyggingu innviða. Fjallað var um forgangsröðun, stefnu og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs til að tryggja næga orku og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.
Árni Hrannar benti á að Ísland stæði frammi fyrir krefjandi en jafnframt spennandi tímum þegar kemur að orkuöflun, uppbyggingu innviða og verðmætasköpun til framtíðar.
„Okkur vantar nýja orku, hún verður líklega dýrari og uppbygging innviða mun kosta. Við þurfum að horfa til þess í samhengi við samkeppnishæfni landsins,“ sagði hann og lagði áherslu á að Ísland væri í samkeppni við Evrópu og heiminn um ný tækifæri í orkutengdri starfsemi.
Tækifæri í núverandi starfsemi og í nýjum leiðum
Aðspurður um helstu tækifæri fyrir Orku náttúrunnar sagði Árni mikilvægt að horfa bæði til núverandi starfsemi og nýrra leiða í orkuöflun. „Það sem skiptir máli fyrir ON er að halda áfram að viðhalda framleiðslugetu virkjana okkar.“
Hann nefndi jafnframt djúpnýtingu jarðhita sem mögulega nýja auðlind fyrir Íslendinga, auk þess sem lágvarmi fæli í sér veruleg tækifæri til aukinnar nýtingar á staðbundnum grunni.
Í framhaldinu lagði Árni áherslu á að hraða þurfi orkuskiptum og klára þau verkefni sem þegar eru komin vel á veg. „Við þurfum að klára orkuskiptin og vinna hraðar að því,“ sagði hann og benti á að alþjóðleg þróun hefði skýrt sýnt mikilvægi þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. „Við sjáum hvernig heimspólitíkin hefur áhrif á olíuverð og hversu mikilvægt það er fyrir okkur að auka notkun rafmagnsins.“
Bílaleigurnar þurfa að vera með
Árni sagði næstu stóru áskorun felast í því að færa ákveðna geira yfir í rafmagn, þar sem bílaleigur væru þar í lykilhlutverki. „Stóri fíllinn í herberginu eru bílaleigurnar, það þarf að koma þeim inn í rafmagnið,“ sagði hann og bætti við að tæknilegar forsendur væru að mestu til staðar. Drægni rafbíla hefði aukist verulega og uppbygging hleðsluinnviða væri komin langt á veg. „Hvað er það þá sem vantar?“ spurði Árni og svaraði því sjálfur: „Þetta er ekki tæknilegt vandamál, þetta er útfærsluvandamál.“
Hann talaði einnig um mikilvægi samvinnu milli opinberra aðila og markaðarins við næstu skref. Nauðsynlegt væri að ráðstafa fjármagni með skynsömum hætti til að tryggja að uppbygging innviða styðji raunverulega notkun. „Við þurfum að tryggja að túristinn vilji, geti og þori að nota þetta,“ sagði hann og nefndi einnig að Orka náttúrunnar hefði unnið markvisst að uppbyggingu hleðslunets frá árinu 2014 og samkvæmt útreikningum fyrirtækisins gæti það kostað um 3 milljarða króna að tryggja að allar bílaleigur á Íslandi geti fært sig yfir í rafmagn.
Þetta er umræða sem mikil þörf er á að halda áfram eftir góðar umræður á ársfundi Orkuveitunnar í gær þar sem ýmislegt fleira spennandi kom fram varðandi starfsemi fyrirtækisins alls. Hér má sjá upptöku fundarins í heild.














