Frétt
·
Oct 27, 2023
Tinna er ný markaðsstýra ON
Tinna er ný markaðsstýra ON

Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún þegar hafið störf. Tinna mun einnig taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Tinna gegndi starfi framkvæmdastjóra Skógarbaðanna í Eyjafirði þar til fyrr á þessu ári og býr yfir mikilli reynslu á sviði markaðsmála.
Tinna er viðskiptafræðingur að mennt, hefur lokið MBA námi og er með diplóma í mannauðsstjórnun. Hún var forstöðumaður markaðsmála hjá Reginn hf. og Smáralind á árunum 2017-2022 en áður hafði hún gegnt hlutverki markaðsstjóra hjá Brimborg og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
„Orka náttúrunnar er afar spennandi félag og ég tel mig vita að þar sé gott að starfa. Viðfangsefnin eru líka sérlega áhugaverð enda orkuskiptin krefjandi áskorun en ekki síður mikilvæg. Ég hef stýrt fjölda vörumerkja á mínum ferli og er ekki í vafa um að mín reynsla muni nýtast ON í spennandi samkeppnisumhverfi raforkumarkaðar og á þeirri vegferð að styrkja þekkingu, vitund og ásýnd á vörumerkinu,“ segir Tinna Jóhannsdóttir nýráðin markaðsstýra ON.
„Við erum afar ánægð með að fá Tinnu til okkar enda hefur hún víðtæka reynslu sem mun nýtast okkur. Við erum á fleygiferð í orkuskiptunum og orkumálin verða sífellt mikilvægari með hverjum deginum. Við hlökkum til að vinna með Tinnu og bjóðum hana hjartanlega velkomna,“ segir Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri ON.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.

Fréttir

Vertu með á fréttabréfinu okkar
Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!