Frétt
·
Tilkynning vegna forheimilda við hleðslu

Við innleiðingu á nýju hleðsluappi Orku náttúrunnar voru gerðar breytingar á innheimtuferli hleðslulota. Nú er tekin heimildarbeiðni á greiðslukort áður en hleðsla hefst, líkt og algengt er í sambærilegri þjónustu. Upphæð heimildarbeiðninnar getur verið mismunandi eftir hleðslustöð hverju sinni og er notuð til að staðfesta að kortið sé virkt og geti greitt fyrir hleðsluna. Þegar hleðslu lýkur er aðeins gjaldfært fyrir raunverulegri notkun.
Því miður hafa komið upp tilvik þar sem forheimild fellur ekki sjálfkrafa niður að lokinni hleðslu eins og gert er ráð fyrir. Þetta getur valdið því að fjárhæð forheimildarinnar virðist áfram bundin á greiðslukorti viðskiptavinar í ákveðinn tíma, þrátt fyrir að endanleg greiðsla hafi þegar farið fram eða hleðslu verið lokið.
„Það er í algjörum forgangi hjá okkur að finna lausn á þessu máli og við vinnum náið með samstarfsaðilum okkar og fjárhirðum að úrbótum. Markmið okkar er að tryggja að forheimildir falli niður með eðlilegum hætti að lokinni hleðslu. Okkur þykir afar leitt að þessi staða sé komin upp og biðjumst innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir Kristín Björk Bjarnadóttir, deildarstjóri einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá ON.
Við þökkum viðskiptavinum fyrir þolinmæðina og skilninginn á meðan unnið er að varanlegri lausn.














