Frétt
·
Tækniskólanemar kynntu sér tæknina á bak við orkuskiptin

Orka náttúrunnar tók á móti nemendum úr Tækniskólanum á Tækniskóladeginum sem haldinn var í fjórða sinn í ár. Markmið Tækniskóladagsins er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og gefa þeim tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum sem tengjast námi þeirra.
Í ár vildum við leggja sérstaka áhersla á hleðsluþjónustu ON, það hlutverk sem fyrirtækið gegnir í orkuskiptum í samgöngum og hversu mikilvægt það er fyrir samfélagið. Nemendur heimsóttu því lager hleðsluteymisins þar sem Stefnir Elíasson, deildarstjóri hleðsluþjónustu, fræddi hópinn um mismunandi gerðir hleðslustöðva, hvernig þær virka og hvað þarf að hafa í huga við uppsetningu hleðsluinnviða.
Hópurinn fékk einnig að skoða Kyndistöðina þar sem Guðjón Hugberg, tæknistjóri ON, kynnti Birtuverkefnið svokallaða. Þar fengu nemendurnir að sjá hvernig sólarorka er nýtt í hleðslustöðvarnar á Bæjarhálsi og kynnast hvernig ólíkar orkulausnir geta unnið saman.
Tækniskóladagurinn er mikilvægt tækifæri fyrir ON til að kynna fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins og þau störf og verkefni sem geta beðið framtíðarfagfólks að námi loknu.
Við þökkum nemendum Tækniskólans kærlega fyrir heimsóknina, áhugann og góðar spurningar.

















