Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Jun 20, 2025

Steingerður opnuð - Hellisheiðarvirkjun ON nærri kolefnishlutlaus

Mikilvægum áfanga í átt að minnkandi losun á gróðurhúsalofttegundum var fagnað í gær í Hellisheiðarvirkjun ON þegar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, opnaði lofthreinsistöðina Steingerði með formlegum hætti. Opnunin markar þau tímamót að Hellisheiðarvirkjun verður ein af fyrstu jarðvarmavirkjunum heims til að verða nær kolefnishlutlaus.

Hönnun og bygging Steingerðar er lykilþáttur í svokölluðu Silfurberg verkefni, sem er nýsköpunarverkefni styrkt af Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Stöðin, ásamt núverandi lofthreinsistöð, verður með getu til þess að fanga nær alla losun á koltvísýring (CO2) og brennisteinsvetni (H2S) frá Hellisheiðarvirkjun.

„Markmið ON hefur alltaf verið að framleiða heitt vatn og rafmagn með ábyrgum hætti. Steingerður er stór varða á þeirri vegferð og við erum stolt af því að Hellisheiðarvirkjun verður með henni ein af fyrstu jarðvarmavirkjunum heims til að verða nær kolefnishlutlaus.“ sagði Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Frábært dæmi um gott samstarf

Ráðherra sagði við tilefnið að Silfurberg verkefnið væri frábært dæmi um hverju væri  hægt að áorka þegar vísindi, atvinnulíf og stjórnvöld vinni saman. „Þetta er stór dagur fyrir loftslagstækni á Íslandi. Föngun og binding kolefnis í jarðlög er á meðal þeirra aðgerða sem brýnt er að ráðast í til að vinna gegn loftslagsbreytingum. Þetta hefur ítrekað verið viðurkennt af alþjóðlega vísindasamfélaginu, meðal annars af milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Mikilvæg skref hafa verið stigin af íslenskum frumkvöðlum í þessum efnum og brýnt að starfsemin hvíli á skýrum reglum til framtíðar,“ bætti Jóhann Páll umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra við.

Tímamótaverkefni í loftslagsmálum

Silfurberg verkefnið sem leitt er af Carbfix og Orku náttúrunnar (dótturfélögum Orkuveitunnar), miðar að því að sýna fram á föngun koldíoxíðs og varanlega geymslu þess í bergi á stærri skala en áður. Verkefnið nýtur 3,87 milljóna evra styrks úr Nýsköpunarsjóði ESB sem gerir Carbfix kleift að skala upp tækni sína. Með Steingerði verður geta til að fanga um 30.000 tonn af CO2 árlega, sem verður svo breytt örugglega og varanlega í stein með Carbfix tækninni.

Mikilvægt framlag til loftslagsmarkmiða Íslands

Gert er ráð fyrir að Silfurberg verkefnið eitt og sér muni skila 10% af skuldbindingum Íslands í loftslagsmálum fyrir árið 2030 innan orku- og iðnaðargeira sem falla ekki undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Verkefnið fellur vel að markmiðum Íslands um 55% samdrátt í losun fyrir 2030 og undirstrikar vaxandi hlutverk jarðvarma í orkuskiptum á alþjóða vísu.

 „Silfurberg markar mikilvægt skref í aukinni nýtingu á sannreyndri tækni Carbfix í tengslum við innlenda orkuframleiðslu samhliða því að leggja grunn að fleiri verkefnum á grundvelli samevrópsks regluverks. Opnun Silfurbergs fylgir á eftir opnun annarra verkefna á sviði kolefnisstjórnunar í nágrannalöndum okkar á undanförnum dögum og er vitnisburður um framsækni íslensks og evrópsks iðnaðar í átt að raunverulegum árangri á breiðum grunni.“  sagði Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix.

Hluti af kerfi Steingerðar
Hópur hagaðila og fulltrúar Nýsköpunarsjóðs ESB heimsóttu niðurdælingarholu.
Heimsókn í niðurdælingarholu á koldíoxíði og brennisteinsvetni
Hagaðilar og fulltrúar Nýsköpunarsjóðs ESB fyrir utan Steingerði.

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!