Frétt

·

Starfsfólk ON tók virkan þátt í stærstu jarðhitaráðstefnu heims

Starfsfólk Orku náttúrunnar tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026, stærstu jarðhitaráðstefnu heims, með erindum, fundum og samtölum við samstarfsaðila víðs vegar að úr heiminum.

Ráðstefnunni lauk fyrir helgi en hún var haldin í Calgary í Kanada að þessu sinni. WGC er haldin á þriggja ára fresti, þar sem koma saman sérfræðingar, vísindafólk, fyrirtæki og frumkvöðlar úr jarðhitageiranum alls staðar að úr heiminum til að miðla þekkingu, ræða ný tækifæri og styrkja alþjóðlegt samstarf á sviði jarðhita.

Starfsfólki ON gafst þar tækifæri til að deila reynslu frá Íslandi af sjálfbærri nýtingu jarðhita, kynna verkefni ON og læra af öðrum og eiga fjölmörg góð samtöl um þau tækifæri sem fram undan eru fyrir jarðhitann. Það var því bæði gagnlegt og ánægjulegt fyrir þátttakendur að hitta samstarfsaðila, sérfræðinga og frumkvöðla alls staðar að úr heiminum sem vinna að því sameiginlega markmiði að nýta jarðhita á sjálfbæran og ábyrgan hátt.

Áhersla ráðstefnunnar var meðal annars á nýsköpun, þróun nýrrar tækni og hvernig jarðhiti getur stutt við orkuskipti og aukið orkuöryggi samfélaga um allan heim. Ljóst er að áhugi á jarðhita fer vaxandi og að íslensk þekking og reynsla vekur áfram mikla athygli á alþjóðavettvangi.

Árni Hrannar framkvæmdastjóri ON tók þátt í pallborðsumræðum.


Guðmundur Kjartansson hélt erindið "Gland steam removal system with spray-cooler for steam turbines at Hellisheiði and Nesjavellir".


Hildur Æsa Oddsdóttir flutti erindið "Geothermal for Resilient Cities: Managing Dual-Demand in Urban CHP Infrastructure".


Ingunn Gunnarsdóttir flutti erindið "Powering Innovation: Geothermal Synergy at Hellisheiði in Iceland".


Karl Jakobsson flutti erindið "Exergoeconomic Analysis of the Hellisheiði Geothermal Power Plant".


Árni Hrannar flutti erindið "Drilling Toward Success: ON Power’s Multi-Well Journey".

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!