Frétt

·

Stærsta tækifæri jarðhitans til framtíðar

Nýr samstarfssamningur um næsta áfanga í djúpnýtingarverkefninu IDDP (Iceland Deep Drilling Project) markar mikilvægt skref í átt að betri nýtingu þeirrar auðlindar sem býr í jarðhitasvæðum Íslands. Stefnan er sett á að bora þriðju djúpnýtingarholu verkefnisins á Nesjavöllum í lok árs í þeim tilgangi að finna ofurheitan jarðhita, auðlind sem getur gjörbreytt nýtingu á jarðhita til framtíðar.

Orkuveitan, móðurfélag Orku náttúrunnar, leiðir þennan þriðja hluta verkefnisins í samstarfi við Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun og HS Orku. IDDP-3 er að sögn Heru Grímsdóttur, framkvæmdastýru Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, lykilskref í Djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar og hluti af stærri sýn um að opna nýjan kafla í nýtingu jarðhita.

„Verkefnið snýst ekki bara um eina borholu heldur að þróa þá tækni og þekkingu sem þarf til að virkja ofurheitan jarðhita á næstu árum. Með öflugu samstarfi við stjórnvöld og önnur orkufyrirtæki getum við hraðað þessari vegferð og styrkt stöðu Íslands sem leiðandi afl í sjálfbærum orkulausnum á heimsvísu. Þetta er krefjandi verkefni, en líka eitt stærsta tækifæri jarðhitans til framtíðar,” sagði Hera við undirritun samstarfssamningsins fyrr í mánuðinum. Sjá nánar í frétt Orkuveitunnar.

Gríðarlega mikilvægt fyrir ON

Fyrir Orku náttúrunnar er IDDP-3 sérstaklega mikilvægt. Jarðvarmavirkjanir ON í Henglinum eru meðal verðmætustu innviða samfélagsins og undirstaða bæði raforkuframleiðslu og framleiðslu á heitu vatni fyrir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins. Með áframhaldandi þróun og aukinni þekkingu á dýpri og heitari hluta jarðhitakerfisins skapast raunveruleg tækifæri til að framleiða meira afl úr sama svæði og nýta auðlindina betur.

„Fyrir Orku náttúrunnar gæti þetta þýtt aukna raforkuframleiðslu án þess að stækka þurfi vinnslusvæði, minni þörf á að bora nýjar holur og meiri sveigjanleika í nýtingu auðlindarinnar. Það myndi auka rekstraröryggi Nesjavalla- og  Hellisheiðarvirkjunar og þannig orkuöryggi samfélagsins til lengri tíma, “ segir Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri ON.

Jarðhitinn er undirstaða lífsgæða

Þótt tæknilegar áskoranir verkefnisins séu miklar er mögulegur ávinningur enn meiri. Tvær fyrri tilraunaholur IDDP hafa skilað mikilvægri þekkingu og fært íslenskan jarðhitageira nær því að geta hagnýtt ofurheitan jarðhita, þar sem hitastig fer yfir 350–400°C.

Markmiðið með borun þriðju holunnar, á Nesjavöllum, er að prófa nýjar tæknilausnir og kanna hvernig megi nýta ofurheitan jarðhita á öruggan og hagkvæman hátt til framtíðar.

Árni Hrannar nefnir að verkefnið sé  sérstaklega mikilvægt á tímum þar sem eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku fer vaxandi og samfélagið kallar eftir bæði auknu framboði og ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda.

„Jarðhiti hefur um áratuga skeið verið ein mikilvægasta undirstaða lífsgæða á Íslandi. Til að svo megi áfram vera þarf stöðugt að efla þekkingu, endurnýja innviði og horfa lengra fram á veginn. IDDP-3 er hluti af þeirri vegferð og erum við stolt af Orkuveitunni fyrir að leiða verkefnið,“ segir hann.

Takist IDDP-3 vel getur það ekki aðeins orðið til þess að ON geti mögulega aukið framleiðslugetu sína heldur einnig styrkja stöðu Íslands sem leiðandi þjóð í sjálfbærri nýtingu jarðhita og skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar fyrir samfélagið allt.

 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!