Frétt
·
Jarðvarmahlaupið fékk frábærar undirtektir og heppnaðist virkilega vel

Jarðvarmahlaup Orku náttúrunnar fór fram í gærkvöld í stórbrotinni náttúru Hengilssvæðisins. Þrátt fyrir að rigning hafi sett svip sinn á hluta hlaupsins létu þátttakendur veðrið ekki aftra sér og skapaðist frábær stemning frá upphafi til enda. Hlaupið var vel sótt og þátttakendur nutu þess að takast á við krefjandi en einstaklega fallega hlaupaleið í hjarta eins öflugasta jarðhitasvæðis landsins.
Leiðin, sem er um 13 kílómetrar að lengd, liggur um fjölbreytt landslag þar sem hraun, lækir, gróður og gufuhverir mynda einstaka umgjörð. Ræst var við Hellisheiðarvirkjun og lá hlaupaleiðin inn í Sleggjubeinsdal, upp í Sleggjubeinsskarð, í gegnum Innstadal og meðfram Skarðsmýrarfjalli. Hlauparar komu svo aftur niður að virkjuninni, þar sem gleði og tónlist tóku á móti þeim á leið í markið. Það var gaman að sjá hversu margir hlauparar mættu til leiks og gátu notið útiverunnar og fallegs umhverfisins í kringum virkjunina.
Fyrstu keppendur í mark í hlaupinu voru:
Karlar:
Snorri Eyþór Einarsson 00:56:55
Atli Steinn Sveinbjörnsson 00:56:59
Magnús Stefánsson 00:57:18
Konur:
Jóhanna Skúladóttir Ólafs 01:04:02
Ellie Clemensen 01:07:17
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir 01:09:23
Nýlega gáfu ON og Orkuveitan út nýtt kort yfir gönguleiðirnar í Henglinum en Orkuveitan hefur haft veg og vanda af því að búa til og viðhalda gönguleiðum á svæðinu frá árinu 1991, í samráði við sveitastjórnir í kring. Hér er hægt að kynna sér svæðið nánar og skoða gönguleiðakortið.
Orka náttúrunnar þakkar öllum þátttakendum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum sem gerðu hlaupið eins vel heppnað og raun varð.

Hlaupið í fallegu umhverfi Hengilsins.

1, 2 og nú!

Keppendur inni á Jarðhitasýningunni fyrir hlaup.














