Frétt
·
Umhverfismál á dagskrá Orkunnar í náttúrunni

Nýr þáttur hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni er kominn í loftið. Að þessu sinni ræða Magnea Magnúsdóttir, umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar, og Belinda Eir Engilbertsdóttir, hópstjóri lóða og lendna hjá Orkuveitunni, um hvernig fyrirtækin vinna að því að vernda náttúruna samhliða nýtingu endurnýjanlegra auðlinda.
Í þættinum fara þær yfir fjölbreytt verkefni á sviði landgræðslu, endurheimtar vistkerfa og umhirðu lands. Það er meðal annars hugað að því þegar verið er að fara inn á ný svæði til að kanna jarðhitaauðlindina til að afla frekari orku eins og Orkuveitan og ON eru að gera núna í Meitlum. Þá reima þær Magnea og Belinda á sig gönguskóna, skoða svæðið og upplifa það og vinna svo með verkefnastjórum og öðrum sem eru að fara að vinna á svæðinu og velja bestu staðsetningar fyrir t.d. borteiga, vegslóða og fleira þannig að það falli sem best að landslaginu og valdi sem minnstu raski.
Í þættinum segja umhverfiskonurnar okkar, eins og þær kalla sig sjálfar, einnig frá Hengilssvæðinu, einu merkasta jarðhitasvæði landsins, þar sem starfsemi ON og einstök náttúra fara saman. Hengillinn er vinsælt útivistarsvæði með um 130 kílómetra neti merktra gönguleiða og þar er lögð rík áhersla á að fólk geti notið svæðisins á sama tíma og auðlindir þess eru nýttar á ábyrgan hátt.
Næsta fimmtudag verður Jarðvarmahlaup ON einmitt haldið á Hengilssvæðinu og er því kjörið að hlusta á þáttinn til að fræðast um náttúruna sem þátttakendur hlaupa um og þá miklu vinnu sem lögð er í að vernda og endurheimta svæðið.
Horfðu og hlustaðu á þáttinn í heild sinni hér.














