Frétt
·
Smávægilegar jarðskorpuhreyfingar á Nesjavöllum

Undanfarið hafa mælst smávægilegar breytingar í jarðskorpuhreyfingum á Nesjavöllum.
Mælingar benda til þess að um aukið landsig sé að ræða á afmörkuðu svæði innan vinnslu- og niðurdælingarsvæðis Nesjavallavirkjunar, líklega tengt hreyfingum á misgengjum. Ásamt því hafa tvær smáar jarðskjálftahrinur mælst á svæðinu.
Orsök hreyfinganna er óljós, en jarðhitavinnsla á sér stað innan virks flekaskilasvæðis og því viðbúið að hreyfingar verði á misgengjum á svæðinu af náttúrulegum orsökum eða að hluta til fyrir tilstuðlan jarðhitavinnslu.
Jarðvísindafólk Orkuveitunnar hefur farið yfir stöðuna með sérfræðingum frá Háskóla Íslands, ÍSOR og Veðurstofu Íslands. Á þessu stigi benda gögn ekki til yfirvofandi atburða eða hættu. Áfram verður fylgst með svæðinu.














