Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Jun 11, 2025

Skipulagsstofnun í heimsókn til Orku náttúrunnar og Orkuveitunnar

Í síðustu viku fékk Orka náttúrunnar og Orkuveitan ánægjulega heimsókn frá Skipulagsstofnun. Markmið heimsóknarinnar var að efla samskipti og auka gagnkvæman skilning á þeim verkefnum sem stofnanirnar vinna að, sérstaklega í tengslum við umhverfismat, skipulagsmál og orkuöflun.

Fulltrúar Skipulagsstofnunar heimsóttu Hellisheiðarvirkjun, aðra af tveimur jarðvarmavirkjunum ON í Henglinum en þar er einnig Nesjavallavirkjun. Þar fengu þau kynningu á starfsemi fyrirtækjanna, m.a. um fyrirætlanir um aukna orkuöflun, sjálfbæra nýtingu jarðhita og nýsköpun í orkumálum.

Á fundinum var rætt um mikilvægi samráðs í skipulags- og framkvæmdamálum en einnig um þau tækifæri og áskoranir sem fylgja orkuskiptum og áframhaldandi þróun á svæðum á borð við Hengilssvæðið. Þá var einnig rætt um hvernig hægt sé að auka gagnsæi og skilvirkni í málsmeðferð og stuðla að góðu samstarfi milli opinberra aðila og framkvæmdaaðila.

Í lok heimsóknar var farið í stutta vettvangsferð um svæðið þar sem starfsemi ON var kynnt enn frekar.

Við þökkum Skipulagsstofnun kærlega fyrir komuna og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs. 

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!