Samið um 600 milljóna króna Evrópustyrk til Carbfix
Dirk Beckers, framkvæmdastjóri aðgerða Evrópusambandsins í loftslagsmálum, og Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, skrifuðu í gær undir tæpra 600 milljóna króna styrktarsamning nýsköpunarsjóðs sambandsins við frekari þróun Carbfix-kolefnisbindingaraðferðarinnar við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Styrkurinn nemur tæpum helmingi heildarkostnaðar við verkefnið, sem kallast Silfurberg og miðar að sporlausri orkuvinnslu í virkjuninni.
Undirritunin fór fram í Brussel á einum hliðarviðburða COP26 þar sem Beckers greindi frá stuðningi sambandsins við þrjú verkefni sem öll miða að kolefnishlutleysi. Edda Sif flutti ávarp á málþingi sem Evrópusambandið gekkst fyrir í tilefni samninganna. Carbfix hefur þegar komið við sögu á COP26, sem nú stendur yfir, en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vék sérstaklega að fyrirtækinu og aðferð þess til varanlegrar kolefnisbindingar í ávarpi við setningu loftslagsráðstefnunnar í Glasgow. „Markmið Silfurbergs-verkefnisins er að byggja nýja hreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun sem mun fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri virkjunar okkar sem síðan verður dælt niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Þar með mun Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta flokk grænnar jarðvarmanýtingar með sporlausri framleiðslu rafmagns og varma,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra ON. Carbfix-aðferðin virkar gegn loftslagsvánni Stærri og öflugri hreinsistöð Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix: „Það er mikil viðurkenning fyrir ungt þekkingarfyrirtæki eins og Carbfix að fá svo veglegan styrk úr nýsköpunarsjóðnum og til merkis um að kolefnisförgun með Carbfix tækninni er í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem getur haft áhrif langt út fyrir landsteinanna.“ |
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.