Frétt

·

Samdráttur í losun hjá ON meiri en heildarsamdráttur jarðvarmavirkjana á Íslandi

Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi dróst saman um 3,9 prósent milli áranna 2024 og 2025 og nam 10,6 milljónum tonna af CO₂-ígildum á síðasta ári. Á sama tíma dróst losun frá virkjunum Orku náttúrunnar saman um tæp 12 þúsund tonn, sem svarar til um 15 prósenta af heildarsamdrætti samfélagslosunar á Íslandi.

Samdráttur í losun frá virkjunum ON var jafnframt meiri en samanlagður samdráttur frá öllum jarðvarmavirkjunum landsins, en hann nam um 9.200 tonnum milli ára.

Aukin föngun jarðhitalofttegunda hjá ON á þar stóran þátt. Á Hellisheiði hefur verið unnið markvisst að því að draga úr losun frá jarðvarmavinnslu, meðal annars með Steingerði, nýrri lofthreinsistöð sem fangar bæði koldíoxiðs (CO₂) og brennisteinsvetni (H₂S).

Steingerður er hluti af áframhaldandi þróun á Hellisheiði þar sem markmiðið er að draga úr losun frá jarðvarmavinnslu og nýta betur þá tækni og innviði sem þar hafa byggst upp. Verkefnið byggir á þeirri reynslu sem orðið hefur til við föngun og niðurdælingu í samstarfi við Carbfix.

„Það er ánægjulegt að sjá losun dragast saman milli ára og sérstaklega að sjá þann árangur sem náðst hefur í okkar eigin starfsemi. Á sama tíma vitum við að það þarf að gera meira ef Ísland á að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið í loftslagsmálum. Það kallar á aðgerðir á mörgum sviðum samfélagsins og áframhaldandi þróun og nýsköpun í atvinnulífinu. Við hjá ON munum halda áfram að vinna að því að draga úr losun frá okkar starfsemi og nýta jarðvarmann á ábyrgan hátt,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Þótt losun frá jarðvarmavirkjunum sé aðeins hluti af heildarlosun Íslands sýna tölurnar að þróun tækni og aukin föngun geta haft raunveruleg áhrif.  Einnig er nú unnið að því að skilja betur hvert eðli losunarinnar er þar sem jarðhitasvæði gefa frá sér lofttegundir af náttúrulegum orsökum löngu áður en þau eru virkjuð. Alþjóðlegt samstarf vísindamanna, stjórnvalda og rekstraraðila innan IEA Geothermal Gas Management Task vinnur nú að því að bæta skilning á samspili náttúrulegrar losunar og áhrifa jarðvarmanýtingar og þróa samræmdar aðferðir til losunarbókhalds. Samhliða þeirri vinnu leggja ON og samstarfsaðilar áfram áherslu á að draga markvisst úr þeirri losun sem tengist vinnslunni með föngun og niðurdælingu eða nýtingu jarðhitalofttegunda.

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!

Viltu fá fréttir frá okkur?

Fáðu nýjustu fréttir frá okkar fjölbreyttu starfsemi, beint í pósthólfið þitt!