Frétt
·
Apr 16, 2026
Rjúfum vítahring olíunnar

Guðjón Hugberg Björnsson tæknistjóri Orku náttúrunnar skrifaði grein sem birtist á Vísi í morgun þar sem hann fjallar um nauðsyn þess að rjúfa þann vítahring sem myndast hefur í kringum notkun jarðefnaeldsneytis.
Í greininni bendir Guðjón á að samfélagið sé enn fast í mynstri þar sem meirihluti landsmanna er háður innfluttri olíu. Þrátt fyrir aukna vitund um loftslagsmál og þörfina á orkuskiptum haldi innviðir, fjárfestingar og neysluvenjur áfram að styðja við notkun jarðefnaeldsneytis. Þetta skapi aðstæður þar sem erfitt sé að ná raunverulegum breytingum.
„Við flytjum inn olíu fyrir um 160 milljarða króna á ári. Í fjárlögum ársins er gert ráð fyrir að um 5 milljarðar króna renni í Loftslags- og orkusjóð. Þeir fjármunir eiga að standa undir orkuskiptum þjóðarinnar í heild; jafnt í skipaflotanum, innanlandsflugi, hjá flutningafyrirtækjum og við nauðsynlega innviðauppbyggingu um land allt.“
Segir í grein Guðjóns.
Til að rjúfa þennan vítahring segir Guðjón að í stað þess að verja milljörðum í að plástra tímabundnar hækkanir á innfluttri olíu, ættum við frekar að stórefla orkuskipti í samgöngum. Við ættum að gera það núna svo við séum ekki háð ákvörðunum sem teknar eru handan við hafið.
Hann bendir einnig á að Ísland sé í einstakri stöðu til að vera sjálfbært með orku. „Hugsum frekar um morgundaginn, treystum á tæknina sem er tilbúin og fjárfestum af fullum krafti í okkar eigin orku. Það er eina leiðin til að tryggja að hjól atvinnulífsins haldi áfram að snúast, flutningar gangi greiðlega og okkar daglega frelsi til að ferðast sé alltaf á okkar eigin forsendum.“
Grein Guðjóns er innlegg í mikilvæga umræðu um hvernig við höldum orkuskiptunum áfram og stígum þannig næstu skref í átt að sjálfbærari framtíð.
Lesa má grein Guðjóns í heild hér.














