Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

May 20, 2025

Orka náttúrunnar með fjölbreytt erindi á Samorkuþingi

Orka náttúrunnar tekur virkan þátt í Samorkuþingi sem haldið verður 22. og 23. maí en Samorkuþing er stærsta fagráðstefna landsins í orku- og veitutengdri starfsemi og er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri. Aldrei hafa fleiri sótt Samorkuþing en í ár. Búist er við um 620 gestum í Hofi á meðan á þinginu stendur.

Starfsfólk ON flytur sjö erindi á þinginu um fjölbreytt og spennandi verkefni sem endurspegla þá þekkingu, nýsköpun og framsýni sem einkennir starfsemi fyrirtækisins en alls verður boðið upp á um 130 fyrirlestra í alls 25 málstofum  um fjölbreytt viðfangsefni orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.

Erindin frá ON endurspegla bæði framtíðarsýn fyrirtækisins í sjálfbærri orkuvinnslu og þau mikilvægu verkefni sem unnin eru innan þess, hvort sem um er að ræða þróun nýrrar tækni, öflugt starf á sviði orkumiðlunar eða nýsköpunarverkefni sem styðja við orkuskipti.

Erindi frá starfsfólki ON á Samorkuþingi 2025 eru eftirfarandi og lýsing á þeim.

Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna:
Bakþrýstivél til bættrar nýtingar Hverahlíðar
Hverahlíðin er rekin á hærri rekstrarþrýsting en Hellisheiði og til að leiða gufu frá Hverahlíð í gufuveitu Hellisheiðarvirkjunar þarf að lækka þrýstinginn. Við þetta tapast orka sem mætti nýta með bakþrýstihverfli og  auka raforkuframleiðslu um 15 MWe. ON vinnur nú að uppsetningu slíkrar vélar.

Ólafur Jósef Ólafsson, sérfræðingur í blöndunar- og varmastöðvum og Baldur Brynjarsson, verkefnastjóri nýsköpunarverkefna:
Blöndunarverkefnið – frá hugmynd að framkvæmd
Blöndunarverkefni Orkuveitunnar, ON og Veitna gengur út á að þróa ný framleiðsluferli í jarðhitavirkjunum Orku Náttúrunnar til að geta sameinað hitaveitukerfi höfuðborgarsvæðisins, en í dag fá íbúar heitt vatn frá tveimur ólíkum jarðhitaauðlindum sem ekki má blanda saman. Hver er ágóði þess að sameina hitaveitukerfin? Hvernig hefur praktíska hliðin á uppsetningu blöndunarturns verið og hvernig hefur verkefnið gengið frá sjónarhóli ON? Hverjar eru áskoranirnar og hvaða lærdóm er hægt að draga af reynslunni hingað til. 

Dagur Helgason, sérfræðingur í orkumiðlun:
Raforkuöryggi almennings og samspil við varmaframleiðslu
Raforkuöryggi er eitt brýnasta úrlausnarefni orkumarkaðarins, en trygging þess snýr ekki aðeins að framboði heldur einnig að markaðsformum, ábyrgðarskiptingu og samspili við aðra orkuflokka, ekki síst varmaframleiðslu. Hvernig getur markaðskerfið unnið með – en ekki gegn – þessu markmiði? Og hvaða áhrif getur aukin áhersla á raforku haft á afhendingaröryggi varma? Í erindinu verða dregnar fram hagnýtar lausnir og ábendingar sem byggja á nýlegum umbótum á markaði, svo sem gagnsærri markaði og aflþjónustu, og rætt verður hvað þarf að gera næst.

Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar:
Heit nýsköpun uppi á heiði
Nýsköpunarkjarni Jarðhitagarðs ON er nú í  uppbyggingu og fáum við að kynnast honum og heitum tækifærum sem í honum felast.

Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri:
Birta á Bæjarhálsi
Birtuorkuver á Bæjarhálsi er tilraunaverkefni þar sem sett verður upp sæmilega stórt birtuorku kerfi á kyndistöðina á Bæjarhálsi. Kerfið er tengt við stóran rafhlöðubanka sem er tengdur við heimtaug sem nýtt er af hraðhleðslustöðvum í rekstri ON. Rannsóknin snýr að nýtingu birtuorkukerfa við aðstæður í Reykjavík og nýtingu á rafhlöðubanka við hraðhleðslustöðvar sem „virtual heimtaug“ með raunverulegri heimtaug.

Hildur Æsa Oddsdóttir, sérfræðingur í orkumiðlun:
Frá jarðhita til viðskiptavina
Hverjar eru áskoranir í samþættingu framleiðslu og sölu á heitu vatni og rafmagni? Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjanir Orku náttúrunnar eru einstakar í nýtingu jarðhita, þar sem þær framleiða bæði rafmagn og heitt vatn. Þetta tryggir ekki aðeins lífsgæði almennings heldur stuðlar einnig að ábyrgri og hagkvæmri nýtingu jarðhitaauðlindanna.

Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri:
ON og orkuskiptin – aflvaki sjálfbærrar framtíðar
ON hefur verið leiðandi í uppbyggingu hleðsluinnviða og er eini framleiðandi vetnis á Íslandi. En hvernig geta orkuskiptin spilast út og hvar eru tækifærin fyrir hendi

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!