Heimilið

Hleðsla

Fyrirtæki

Virkjanasvæði

Um ON

Frétt

·

Jun 20, 2025

Orka á betra verði með Orkuvísi

Orka á betra verði með Orkuvísi

Orkuvísir er nýr breytilegur taxti sem er frábær valkostur fyrir heimili til að hafa áhrif á raforkuverðið. Hann er fyrsta skref ON í átt að því að opna á möguleika viðskiptavina að hafa áhrif á eigin rafmagnsreikning með ábyrgri eigin notkun. Einar Vilmarsson, sérfræðingur í orkumiðlun hjá Orku náttúrunnar, skrifaði fína grein um Orkuvísi þar sem útskýrt er um hvað málið snýst.

Hér getur þú skráð þig og þitt heimili á breytilegan taxta.

Orka á betra verði

Við hér á Íslandi búum við þau lífsgæði að raforkan er sjálfsagður hluti af lífi okkar - frá kaffinu á morgnana til aksturs á rafbíl um landið. Þótt fæst okkar hugsi um það daglega, byggir raforkukerfið á stöðugu jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar allan ársins hring. Með síauknum vexti samfélagsins og hraðari orkuskiptum verður erfiðara að tryggja þetta jafnvægi.

Raforkukerfið á Íslandi er knúið af endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta er styrkleiki okkar en einnig áskorun. Þó auðlindir landsins séu miklar eru þær ekki ótakmarkaðar og því þarf samfélagið að nýta þær á sem bestan hátt.

Orka náttúrunnar rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjun. Þær framleiða stöðugt magn raforku en geta aðeins í takmörkuðum mæli brugðist við sveiflum í notkun. Raforkunotkun almennings sveiflast mikið: hún er meiri að vetri en sumri, meiri að degi en nóttu og meiri á virkum dögum en um helgar. Til að mæta þessum sveiflum þarf að nýta dýrari, stýranlegri orkuframleiðslu.

Lægra verð þegar álagið er minna

Snjallmælar gera nú tæknilega mögulegt að bjóða heimilum sveigjanlega taxta sem endurspegla raunverulegan kostnað raforku. Hingað til hefur almenningur greitt fast verð fyrir raforkuna, sama hvort rafbíllinn sé hlaðinn á háannatíma eða á nóttu þegar álag er minna. Slíkt er ekki skynsamlegt en með snjallmælum höfum við loksins tól til að verðlauna bætta hegðun neytenda. Tímaháður raforkutaxti, Orkuvísir, sem Orka náttúrunnar býður nú í fyrsta sinn, gefur almenningi færi á að stjórna orkunotkun sinni hagkvæmt og nýta sér lægra verð utan álagstíma. Með Orkuvísinum er t.d. hægt að hlaða rafbílinn alltaf á lægsta mögulega verði samkvæmt verðskrá.

Þessi nýjung endurspeglar raunverulegt markaðsverð rafmagns hverju sinni. Með því að hvetja fólk til að færa raforkunotkun frá álagstoppum yfir á tímabil minni eftirspurnar fletjum við út feril  raforkunotkunar, nýtum betur framleiðslugetu jarðvarmavirkjana og minnkum álagið á raforkukerfið.

Samstillt átak nauðsynlegt

Raforkusala er aðeins hluti af heildarreikningi heimilanna, eða um þriðjungur hans. Aðrir hlutar hans skiptast milli raforkudreifingu, raforkuflutning og sköttum. Enn sem komið er bjóða dreifiveitur og flutningsfyrirtæki ekki upp á tímaháða gjaldskrá.

Til að ná sem mestum ávinningi fyrir neytendur og samfélagið þarf að innleiða tímaháða taxta einnig hjá dreifiveitum og flutningsfyrirtækjum. Með því getur almenningur dregið úr kostnaði með því að færa notkun sína utan háannatíma, jafnað álag á kerfið, styrkt raforkuöryggi og minnkað þörfina fyrir dýrar toppaflsstöðvar. Þetta stuðlar jafnframt að umhverfisvænni og hagkvæmari nýtingu raforku.

Mikilvæg nýjung á raforkumarkaði

Engin ein lausn getur leyst allar áskoranir raforkukerfisins, en sveigjanleg verðlagning þar sem neytendur hafa bein áhrif á kostnað sinn er mikilvægur þáttur til að tryggja raforkuöryggi og bæta nýtingu kerfisins til framtíðar.

Orkuvísir ON er því mikilvæg nýjung sem gerir fólki kleift að lækka raforkukostnað sinn, stuðlar að betri nýtingu raforkukerfisins og styður markmið um sjálfbæra og umhverfisvæna orkunotkun á Íslandi.

Vertu með á fréttabréfinu okkar

Fáðu nýjustu fréttir, uppfærslur og sértilboð beint í pósthólfið þitt!